Bláa gullið
Ævintýraferð um undraheima vatnsins
Um verkið
Út frá sjónarhorni trúðsins er vatn skoðað á einlægan en trúðslegan hátt. Hvert ætli sé eðli vatns? Hvað er svona merkilegt við það? Hvað er úthaf og hvað er tár, hvað er foss og regn? Hvaðan kemur vatn og hvert fer það? Trúðnum er ekkert óviðkomandi og hann hikar ekki að leggja fram spurningar og vangaveltur um allt milli himins og jarðar.
Trúðarnir halda í rannsóknarleiðangur um undraheima vatnsins sem endalaust er hægt að skoða, undrast og skemmta sér yfir. Ragnhildur Gísladóttir tónlistarmaður og Gjörningaklúbburinn skapa sýningunni töfrandi umgjörð með nýstárlegri hjóð- og sviðsmynd. Sýningin er fræðandi og forvitnileg fyrir pælandi skólakrakka, en fyrst og fremst bráðskemmtileg trúðasýning fyrir alla fjölskylduna.
Aðstandendur
- Leikstjórn Charlotte Bøving
- Leikmynd Gjörningaklúbburinn
- Búningar Gjörningaklúbburinn
- Tónlist Ragnhildur Gísladóttir
- Leikarar Ilmur Kristjánsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir, Víkingur Kristjánsson
Umsagnir
- "Leikstjórinn Charlotte Böving heldur í alla strengi af þeirri tegund listfengi og kunnáttu sem ekki er allt of mikið af í íslensku leikhúsi. Hugmyndin að láta trúða með rauð nef, fræða fullorðna og stálpuð börn um jafn flókið fyrirbæri og vatnið og þýðingu þess fyrir lífið á jörðunni er bæði glettin og snjöll. Leiknu “sitúasjónirnar” sem varpa upp vísindalegum, heimspekilegum,samfélagslegum flötum á vatninu eru hver annarri skemmtilegri,margir góðir og lúmskir brandarar inn í samtímann eru þar fyrir fullorðna fólkið. Sýningin flæðir vel því hugvitsamlega og létt er skipt á milli atriða og skemmtlegt er hvernig unnið er með þagnir og ljós og myrkur. Víkingur,Sólveig og María sem ásamt leikstjóra semja verkið,nota ekki eins miklar ýkjur í karaktersköpun og frumkvöðlarnir í Borgó ná frábæru sambandi við salinn og hvert annað og sýna oft snilldartakta í meðferð texta og í hreyfingum.
Niðurstaða: Sú bábilja síðustu áratuga að fræðsla eigi ekki heima í leikhúsi er hér barin niður með skellihlátri og kærleik til alls sem lifir og streymir. Yndisleg sýning fyrir börn frá sex eða átta ára aldri og foreldra þeirra,afa og ömmur." María Kristjánsdóttir, Eyjan.is
"Bláa gullið er vel unnin, falleg og vel leikin sýning," Guðmundur S. Brynjólfsson, Mbl

