Dúfurnar
Bragðmikill verðlauna gamanleikur
Um verkið
„Ég vil burt héðan“ eru fyrstu orð Róberts forstjóra í jólaboði fyrirtækisins. Skömmu síðar hverfur hann með húð og hári. Vænisjúka taugahrúgan Holgeir sest í forstjórastólinn þó honum sé það þvert um geð. Við tekur einelti, tvíelti, framhjáhald, undanhald, geðlækningar, geðsýkingar, innbrot, útbrot, uppástungur, undanstungur, dúfnarækt, dúfnaát og auðvitað franski tvífarinn!
David Gieselmann (1972) hefur hlotið mikið lof fyrir verk sín, og þykja leikrit hans höfða til nýrrar kynslóðar leikhúsgesta. Þau eru í senn meinfyndin, flugbeitt og þykir húmor Gieselmanns æði nýstárlegur. Þeir sem hafa gaman af Klovn og The Office ættu að geta fundið sitthvað fyrir sinn smekk í þessu verki. Gieselmann hefur undanfarið starfað við virtasta leikhús Þýskalands, Schaubühne í Berlín. Þekktasta leikrit hans, Herra Kolbert, hefur farið sigurför um heiminn og verið sýnt í yfir tuttugu löndum, þar á meðal Íslandi, við miklar vinsældir. Dúfurnar unnu til verðlauna í Þýskalandi sl. haust sem besti nýi gamanleikurinn og gekk fyrir fullu húsi í Berlín síðastliðinn vetur.
Aðstandendur
- Höfundur David Gieselman
- Þýðing Hafliði Arngrímsson
- Leikstjórn Kristín Eysteinsdóttir
- Leikmynd Ilmur Stefánsdóttir
- Búningar Ilmur Stefánsdóttir
- Lýsing Þórður Orri Pétursson
- Tónlist Vilhelm Anton Jónsson
- Leikarar Elma Lísa Gunnarsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragnarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Sigurður Sigurjónsson
Umsagnir
- **** "Skemmtileg sýning í sérstöku formi." Elísabet Brekkan, Fbl
**** (af ****) "Ætla ég þá ekki að gagnrýna neitt? Var þetta allt, eins og það átti að vera? Svei mér þá – já. Mátti ekki betra vera. Til hamingju, Kristín Eysteinsdóttir, þú hefur sannað þig sem kraftmikill og fumlaus leikstjóri, sem ert vonandi komin til að vera og gefa." Bryndís Schram, pressan.is
*** Leikfélagið teflir fram sterkum hópi og það skilar sér… Sigurður Sigurjónsson var hreint út sagt frábær sem sálfræðingurinn sem er alltaf að ruglast á sjúklingum sínum, … Halldór Gylfason var líka mjög fyndinn sem aðstoðarforstjórinn sem er lagður í einelti í fyrirtækinu og má ekki til þess hugsa að verða yfirmaður þess. Aðrir stóðu vel fyrir sínu. Jón Viðar Jónsson, DV
**** “Kristín hefur tekið nokkrar djarfar ákvarðanir og haldið þeim til streitu svo að verkið verður bráðfyndið í leik ofan á smellinn texta. Eftirminnilegustu söngatriðin eru þeirra Hilmis Snæs og Halldóru Geirharðsdóttur en þau voru frábær í hlutverkum sínum. Reyndar stóðu allir leikarar sig með ágætum. Persónusköpun var skýr og textaflutningur góður. “ Ingibjörg Þórisdóttir, Mbl
“Leikritið er líka fantavel skrifað og prýðilega þýtt af Hafliða Arngrímssyni, og Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri hefur skemmt sér undir drep við að stýra þessum dásamlega leikhópi í trylltum hrunadansi verksins. …Það ríkti mikil leikgleði á Nýja sviði í gærkvöldi, að ég segi ekki sturluð leikvíma, og vísast að Robert Bertrand ratist rétt á munn þegar hann stynur í leikslok: Ég slepp ekki héðan í bráð …” Silja Aðalsteinsdóttir, TMM

