Óskar og bleikklædda konan
Verk sem lætur engan ósnortinn
Um verkið
Sumar sögur eru svo mannbætandi að skylda ætti fólk til að lesa þær. Óskar og bleikklædda konan segir af Óskari, tíu ára einstökum dreng, sem veit það sem enginn þorir að segja honum, að hann á skammt eftir ólifað. Eldri kona sem er sjálfboðaliði á sjúkrahúsinu, virðist vera sú eina sem hefur þroska og þor til að ræða hið óumflýjanlega við Óskar og ráðleggur honum að skrifa bréf til Guðs. Í bréfunum og samskiptum drengsins og vinkonu hans á sjúkrahúsinu birtist djúp lífsspeki sem þó er uppfull af hlýlegum leiftrandi húmor.
Óskar og bleikklædda konan er eitt þeirra verka sem hreyfa við fólki á eftirminnilegan hátt. Höfundurinn Eric-Emmanuel Schmidt fæddist í Lyon 1960. Hann stundaði tónlistarnám og lauk háskólaprófi í heimspeki. Frá 1991 hefur Schmitt skrifað fjölda leikrita, þeirra þekktast Gesturinn, Abel Snorkó býr einn og Léttúð. Eric-Emmanuel Schmitt skrifaði söguna um Óskar sem lokaþátt í þríleik um hlutverk trúarbragðanna í mannlegu samfélagi.
Frumsýnt 5. mars á Litla sviði
Aðstandendur
- Höfundur Eric-Emmanuel Schmidt
- Þýðing Guðrún Vilmundardóttir
- Leikstjórn Jón Páll Eyjólfsson
- Leikmynd Snorri Freyr Hilmarsson
- Búningar Snorri Freyr Hilmarsson
- Lýsing Þórður Orri Pétursson
- Tónlist Hallur Ingólfsson
- Leikarar Margrét Helga Jóhannsdóttir

