Gosi

Ævintýrið sígilda um frægasta spýtustrák allra tíma

Gosi  - sýningum lokið

Um verkið

Leikfangasmiðurinn Jakob smíðar strengjabrúðu sem á töfrastundu lifnar við og forvitinn strákur, Gosi, verður til. Gosi á erfitt með að feta hinn rétta veg og í stað þess að hlýða föður sínum og fara í skólann heldur hann á vit vafasamra ævintýra. Tumi engispretta tekur að sér það hlutverk að kenna Gosa að þekkja muninn á réttu og röngu og forða honum frá ógæfu. En það er vandasamt starf og spurningin er: Tekst Gosa að öðlast samvisku og verða "alvöru drengur"?

Gosi er falleg, einlæg og fjörleg fjölskyldusýning með frábærri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson og eru sönglögin úr leikritinu þegar orðin sígild meðal krakka. Ríflega 25 þúsund leikhúsgestir hrifust með ævintýrum Gosa, Jakobs og Tuma engisprettu á síðasta leikári. Vegna mikilla vinsælda verður sýningum haldið áfram í haust en þeim lýkur í október.

Sýnt í september og október. Geisladiskurinn og bókin um Gosa eru enn fáanleg! Að sýningum loknum heilsa Gosi og félagar upp á börnin í forsal leikhússins. 

Um verkið

  • Lengd 2 klst og 10 mín með hléi
  • Svið Stóra svið
  • Tegund Barnaleikrit
  • Verð 2750

Þetta vefsvæði byggir á Eplica