Fólkið í blokkinni

Nýr söngleikur eftir Ólaf Hauk

Um verkið

Hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft. Hárfinnur hárfíni er í forsvari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum á meðan Robbi húsvörður reynir ólmur að koma í veg fyrir að söngleikurinn komist á koppinn. Sjarmörinn Hannes reynir allt hvað hann getur að ganga í augun á Söru. Tekst þeim að frumsýna söngleikinn? Ná Sara og Hannes saman? Og hver á skjaldbökuna í baðkarinu?!

Ólafur Haukur Símonarson hefur á farsælum ferli skrifað sig inn í hjarta þóðarinnar, bæði með leikritum sínum og ógleymanlegum sönglögum. Hér sameinar Ólafur Haukur þetta tvennt, verkið byggir á vinsælum dægurlögum og smásögum um líf fólksins í blokkinni sem öðlast nýtt líf á leiksviðinu.

Sett upp í samstarfi við SPRON.

Tónlistin er væntanleg á geisladiski frá Senu.

Meðal laga á disknum: Fólkið í blokkinni, Hárfinnur hárfíni, Góða nótt, Lyftan ásamt nýjum lögum: Húsbíll, Hver er ég, Það er vor og Robbi.

Umsagnir

  • **** (fjórar stjörnur) „Það sem þjóðin þarf... Það var gott að koma í Borgarleikhúsið á föstudagskvöld... leikhúsið og leiklistin eru meðal þeirra verðmæta sem ekki bregðast okkur, þegar á reynir... Þess vegna var svo gott að koma í Borgarleikhúsið á föstudagskvöld. Við vorum öll hrædd og skekin, en við vorum samt mætt – og leikararnir og músíkantarnir voru líka mættir. Og þeir léku listir sínar eins og ekkert hefði í skorist. Söngur lífsins var ekki hljóðnaður, þrátt fyrir súrrealískar hrollvekjur síðustu dægra. Og maður snéri heim léttari í lund en þegar maður kom... Nú þurfum við skáld eins og Ólaf Hauk Símonarson, mannvin og húmorista sem kann að segja okkur spaugilegar sögur af íslensku hversdagsfólki... Ólafur Haukur mættur til leiks eins og hann gerist bestur... Hann opnast nú við okkur eins og hlýr faðmur. Og um leið rifjast það upp fyrir okkur, sem við mundum kannski ekki alltaf á feitu árunum, hvað leikhúsið getur gert okkur mikið gott, ef því er beitt af góðum hug, góðum vilja og góðri fagmennsku. Þetta er leiksýning sem nú á erindi við alla þjóðina. Við erum aðeins fólk í einni blokk. Ekkert meira og ekkert minna. Það verðum við að muna nú.“ JVJ, DV, 13. Okt 2008

    „Óli með hjarta svo heitt... það er skemmtilegur leikur í leiknum, húmor auðvitað, persónurnar beint úr íslenskum veruleika og boðskapur alters ego höfundarins, hans Óla, bræðir að lokum harðsvíruðustu hjörtu, sviptir ógninni af alþjóða-gjaldeyrissjóðnum úr höfðunum að minnsta kosti nokkur andartök og fær mann til að trúa að í blokk í Hólahverfinu þar sem raunveruleg samhygð ríkir, menn syngja saman og beita töfrabrögðum, kunni okkur öllum að verða bjargað með kærleikanum einum saman. Þetta er sá þáttur í húmoristanum Ólafi Hauki Símonarsyni sem ég, eins og asni, hef alla tíð verið hræðilega veik fyrir... Og um leikstjórn hennar þarf ekki að hafa mörg orð; hún vinnur sem slík afrek... er fantagóð; stígandinn í sýningunni eftir hlé og hvernig allir þræðirnir renna snurðulaust saman í eina heild ber að lofa... En Unni Ösp tekst líka að vinna þannig með leikhópnum að aðaláherslan verður ekki á að selja áhorfendum brandara, heldur draga upp myndir af ósköp venjulegum elskuverðum mönnum sem stundum, eins og flestir, eru svolítið hallærislegir og hlægilegir... Hallgrími tekst að gæða þetta undarlega barn, þennan fulltrúa sannleikans og kærleikans ótrúlegu lífi frá upphafi til enda, nálgast heiminn, áhorfendur, með einhvers konar spurulli varkárni þess sem býr yfir visku heimsins og halda áru sinni hreinni undir hlátrasköllunum... Að lokum verður heldur ekki hjá því komist að hrósa Magnúsi Geir, nýjum leikhússtjóra Borgarleikhússins fyrir þá dirfsku að brjóta upp þröngt, nánasarlegt fjárhagsmiðað andrúmsloft atvinnuleikhúsa borgarinnar, leyfa þessa kostnaðarsömu uppbyggingu stóra sviðsins og treysta listamönnum sem standa að sýningunni. Hann mun áreiðanlega uppskera eins og hann sáir.“ MK, Morgunblaðið, 13. Okt 2008-10-13

    „Mjög skemmtileg sýning og ótrúlega vel heppnuð. Það er frábær hugmynd fyrir fjölskyldur að fara saman á Fólkið í blokkinni.“ ÁÁ, Rás 2 , 13. Okt 2008

    „Áhorfendur skemmtu sér... saklaust skemmtiverk sem gæti fengið góða aðsókn... skilar því með miklum ágætum“ PBB, Fréttablaðið, 12. Október, 2008

Um verkið

  • Frumsýning 10. október
  • Lengd 2 klst og 20 mín með hléi
  • Svið Stóra svið
  • Tegund Söngleikur

Þetta vefsvæði byggir á Eplica