Skoppa og Skrítla
á tímaflakki
Um verkið
Skoppa og Skrítla fá óvænta gjöf frá Lúsí – leikandi létt púsluspil. Nú reynir á hvort áhorfendur geti hjálpað þeim að leika við hvern sinn fingur, setja á sig glingur ... og hver er það sem syngur? Jú, það er bakari svakari. En ... af hverju er hann á hvolfi? Og hérna ... ræna sjóræningjar sjó? Kunna blómin virkilega að tala? Og hvers vegna segir klukkan tikk-takk, en ekki bara takk fyrir takk?
Skoppa og Skrítla hafa verið eftirlæti ungra leikhús- og bíógesta undanfarin ár. Þessi sýning gekk fyrir fullu húsi á síðasta leikári og snýr nú aftur.
Syngjandi glöð sýning fyrir alla skemmtilega stubba, fjölskyldur þeirra – og klukkurnar þeirra.
* * * *
„Sýningin er afskaplega litrík og skemmtileg. Skoppa og Skrítla eru vel skrifaðar persónur og Linda og Hrefna hafa alveg sérstakt lag á yngstu áhorfendunum. Þær tala við börnin af alvöru en þó á þeirra plani ef svo má að orði komast.“
IÞ, Mbl.
Aðstandendur
- Höfundur Hrefna Hallgrímsdóttir
- Leikstjórn Gunnar Helgason
- Leikmynd Þórdís Jóhannesdóttir
- Búningar Una Stígsdóttir
- Lýsing Magnús Helgi Kristjánsson
- Tónlist Hallur Ingólfsson
- Leikarar Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Viktor Már Bjarnason
Umsagnir
- **** "Sýningin er afskaplega litrík og skemmtileg. Skoppa og Skrítla
eru vel skrifaðar persónur og Linda og Hrefna hafa alveg sérstakt lag á yngstu áhorfendunum. Þær tala við börnin af alvöru en þó á þeirra plani ef svo má að orði komast." IÞ, Mbl

