Húsmóðirin
Öll trixin í bókinni og nokkur til
Um verkið
Hér tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem dyr opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt. Leikarar skipta um hlutverk á ótrúlega stuttum tíma, einn ryður út úr sér orðaleikjum á meðan annar dettur á bananahýði.
Öll trixin í bókinni og auðvitað fullt af óvæntum uppákomum að hætti Vesturports. Litrík og hættuleg sýning þar sem leikið er út á ystu nöf.
Vesturportshópinn þarf vart að kynna og samstarf hans við Borgarleikhúsið hefur borið ríkulegan ávöxt. Nægir þar að nefna sýningarnar Rómeó og Júlíu, Ást, Woyzeck, Kommúnuna og Faust. Þessar sýningar hafa ferðast víða, til New York, London, Suður-Kóreu, Þýskalands, Hollands, Noregs, Danmörku, Finnlands og Mexíkó. Uppsetning Borgarleikhússins og Vesturports á Faust var valin 40 ára afmælissýning hins virta Young Vic leikhúss í London.
Húsmóðirin er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Vesturports.
Aðstandendur
- Höfundur Vesturport
- Leikstjórn Vesturport
- Leikmynd Ilmur Stefánsdóttir
- Búningar Ilmur Stefánsdóttir
- Lýsing Þórður Orri Pétursson
- Tónlist Pálmi Sigurhjartarson
- Leikarar Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjánsson, Jóhannes Níels Sigurðsson
