Klúbburinn

Dansleikhús um karlmenn

Um verkið

Veisla fyrir augu, eyru, hug og hjörtu

 

Öll berum við með okkur einhverja leyndardóma. Ýmist geta þeir bugað okkur eða gefið okkur tilgang. Klúbburinn er hópur karlmanna og verk um þá. Sex listamenn ala með sér draum um að afhjúpa æðsta leyndarmál listarinnar. Samfélag, samtök, trúfélag, hljómsveit, listahreyfing, leynileg bylting ...

Þú hefur náð langt án þess að afhjúpa sjálfan þig, sestu niður, slakaðu á og njóttu samvistanna! Deildu hugsunum þínum eða þögn og mundu að það er ekki það sem þú hefur gert sem skilgreinir hver þú ert heldur það sem þú ert í  þann mund að fara að gera. Við höldum á vit ókannaðra landa, til að nema, til að sigra, til þess að leita sannleikans og skapa leyndardóma! Við sleppum öllum okkar sprengjum, syngjum alla okkar söngva og ljóstrum öllu upp.

Hér er á ferðinni spennandi sviðsverk þar sem leikhús, dans og tónlist renna saman í eina órofa heild. Þegar þessir sex ólíku listamenn leiða saman hesta sína má búast við leikhússprengju.

Sýningin er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Klúbbsins og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2011.

listahatid

Um verkið

  • Lengd 1 klst.
  • Frumsýning Hefst að nýju 21. október
  • Svið Litla svið
  • Tegund Dansleikhús
  • Verð 3.400

Tengt efni


Þetta vefsvæði byggir á Eplica