Fólkið í kjallaranum

Verðlaunaleikrit sem snýr aftur í haust

Um verkið

Verðlaunasaga Auðar Jónsdóttur, snýr aftur haustið 2011

Klara og Svenni búa í Hlíðunum í Reykjavík, eru í góðri vinnu og lífið brosir við þeim. Eitt fallegt sumarkvöld eiga þau von á vinum í mat. Lagt hefur verið á borð, grillið er klárt og tónlistin ómar. En í kvöld breytist allt... Klara er neydd til að horfast í augu við sjálfa sig og sína nánustu. Atvik úr fortíðinni skjóta upp kollinum og fyrr en varir eru foreldrar hennar, systurdóttir og Barði í kjallaranum komin inn á gafl.

Hugsjónir foreldra hennar og gildismat eigin kynslóðar eiga ekki samleið. Á þessu kvöldi uppgötvar Klara nýjar hliðar á sjálfri sér og eigin lífi.


Fólkið í kjallaranum er mögnuð, ljúfsár saga en um leið uppgjör við ‘68 kynslóðina og venjubundnar hugmyndir um lífið og tilveruna.

Auður Jónsdóttir hefur verið í flokki fremstu rithöfunda þjóðarinnar síðustu ár. Fólkið í kjallaranum kom út árið 2004 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin það ár og var síðar tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Síðan hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hlotið frábæra dóma víða um heim.

Auður Jónsdóttir var fyrsta fastráðna leikskáld Borgarleikhússins og vinnur nú að ritun leikverks fyrir leikhúsið.


Dómar um sýninguna

★★★★ EB, Fbl.

★★★★  KHH, Fréttatíminn

„Fantagóð sýning um árekstra hugmyndafræði ólíkra kynslóða.“ EB, Fbl.

„kröftug og skemmtileg sýning sem snertir við manni.“ IÞ. Mbl.

"Guði sé lof fyrir leikhúsið... – hvergi veikur hlekkur... Ilmur Kristjánsdóttir er yndisleg í hlutverk dótturinnar, Klöru, hlý, einlæg og látlaus... Þetta er fínt teater, fjölskyldudrama í þjóðfélagslegri nærmynd, fín saga og flottur leikur." BS, Pressan.is

Ilmur Kristjánsdóttir er síðan æðisleg Klara, fyndin og tragísk með allan
tilfinningaskalann á sínu valdi.                                                                        KHH, Fréttatíminn

Sýning eins og Fólkið í kjallaranum gæti hjálpað okkur að fullorðnast.         KHH, Fréttatíminn



Dómar um bókina

„Makalaus bók, við höfum eignast dúndurhöfund... Frábærlega hugsuð og yndislega stíluð.“
PBB, Stöð 2

„Í fjörlegri frásögn sinni tekst Auði að draga einkenni þessa tvískinnungs upp á yfirborðið í texta sem er allt í senn; tragískur og fyndinn, umburðarlyndur og dómharður, hlýr og kaldranalegur...afar áhrifarík.“
FBI, Mbl.

„Fólkið í kjallaranum er margslungin skáldsaga sem greip mig svo fast og snerti mig svo sterkt að ég hreinlega táraðist á stundum.“
ÚD, bokmenntir.is

„Skemmtileg, óhefluð og virðingarverð...og svo hefur hún auðvitað sína eigin rödd, þótt hún eigi einnig til visku og mannþekkingu Steinunnar Sigurðardóttur, brostna ljóðrænu Einars Más og brjálaða ringulreið Hallgríms Helgasonar.“
Politiken

Umsagnir

  • ★★★★ EB, Fbl.


    „Fantagóð sýning um árekstra hugmyndafræði ólíkra kynslóða.“ EB, Fbl.

    „kröftug og skemmtileg sýning sem snertir við manni.“ IÞ. Mbl.


    "Guði sé lof fyrir leikhúsið... – hvergi veikur hlekkur... Ilmur Kristjánsdóttir er yndisleg í hlutverk dótturinnar, Klöru, hlý, einlæg og látlaus... Þetta er fínt teater, fjölskyldudrama í þjóðfélagslegri nærmynd, fín saga og flottur leikur." BS, Pressan.is

    Silja Aðalsteinsdóttir, TMM: "Ekki hef ég lengi séð eins vel heppnaða leikgerð skáldsögu á sviði og Fólkið í kjallaranum sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina... Ilmur Kristjánsdóttir nýtur sín í hlutverki Klöru og sýnir vel hvað hún er fantafín leikkona. Elma Lísa er Fjóla, ávallt nálæg í hugarheimi Klöru, hún myndar skemmtilega andstæðu við Ilmi í útliti og fasi og saman verða þær vinkonurnar í verkinu lifandi komnar. Sigrún Edda var alveg hreint guðdómleg í hlutverki móður Klöru og Jóhann spilaði með henni af list í hlutverki pabbans. Upparnir gáfu leikurunum ekki eins góð tækifæri en Guðjón Davíð, Birgitta og Hallgrímur fóru vel með þau.
    Kristín Eysteinsdóttir stýrir sýningunni og þarf ekki að ítreka eftir þessa lýsingu hversu vel henni tekst upp. Hún hefur líka með sér frábæra listamenn sem sjá um leikmynd og búninga (Snorri Freyr Hilmarsson), lýsingu (Björn Bergsteinn Guðmundsson) og tónlist (Frank Hall). Sviðið klýfur Nýja sviðið í Borgarleikhúsinu þannig að setið er báðum megin við það... Það er mikil gæfa að þessi frábæra skáldsaga skuli fá svona vandaða meðhöndlun á leiksviðinu og óskandi að sem flestir sjái hana."

Um verkið

  • Lengd 2 klst, eitt hlé
  • Frumsýning 9. október 2010
  • Svið Nýja svið
  • Tegund Íslenskt nútímaverk
  • Verð 4.400

Þetta vefsvæði byggir á Eplica