Kirsuberjagarðurinn

Eitt besta leikverk allra tíma

Um verkið

Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir

Það eru breyttir tímar. Ný kynslóð er tekin við og sú eldri þráast við að opna augun fyrir þeim breytingum sem eru yfirvofandi. Eftir fimm ára fjarveru snýr Ljúbov Ranévskaja heim á ný. Býli hennar ásamt víðfrægum kirsuberjagarði rambar á barmi gjaldþrots vegna mikilla skulda og yfirvofandi er uppboð á eigninni.

Fjölskyldan hefur eytt um efni fram án þess að leiða hugann að morgundeginum – enda lömuð af minningunni um fegurð og gleði æskuáranna. Lopakhín reynir að opna augu fólksins sem honum þykir svo vænt um fyrir breyttum tímum og vandanum sem steðjar að. Er hægt að höggva niður kirsuberjatrén?
Á meðan fjölskyldan forðast að taka á vandamálunum, kynnast áhorfendur öllu þessu grátbroslega fólki, dætrunum Vörju og Önju, þjónustufólkinu, starfsfólki og vinum fjölskyldunnar. Öll eiga þau drauma og þrár, sumir þrá fortíðina á meðan aðrir eiga sér von um nýtt og betra líf. En öll dreymir þau um ástina – meira að segja Lopakhín.

Kirsuberjagarðurinn er síðasta og mest leikna leikrit Antons Tsjekhovs (1860– 1904). Verkið er af mörgum talið eitt besta leikverk allra tíma, angurvært stórvirki þar sem gaman og alvara vegast listilega á. Leikstjórinn Hilmir Snær hlaut Grímuverðlaun fyrir síðustu uppsetningu sína, Fjölskylduna, sem gekk tvo vetur fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu.

Námskeið Endurmenntunar HÍ og Borgarleikhússins um Tsjekhov og Kirsuberjagarðinn

Um verkið

  • Frumsýning 28. október 2011
  • Svið Stóra svið
  • Tegund Klassík
  • Verð 4.800

Þetta vefsvæði byggir á Eplica