Fréttir

3.2.2012 : Samstarfsverkefni í Borgarleikhúsinu

Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL) Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og
Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur "tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Lesa meira
 

30.1.2012 : Nei ráðherra á Akureyri

Nei ráðherra, verður sýndur á Akureyri í mars eftir yfir 70 uppseldar sýningar í Borgarleikhúsinu. Sýningin var ein vinsælasta sýning síðasta árs, en hún mun snúa aftur á fjalir Borgarleikhússins eftir að hún hefur glatt norðlendinga í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Lesa meira
 

27.1.2012 : Saga þjóðar  |  Sýningar hefjast í kvöld

Í kvöld hefjast á Litla sviðinu sýningar á sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum. Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppistand en venjulega tónleika.

Lesa meira
 

27.1.2012 : Eldhaf frumsýnt í gærkvöldi

Í gærkvöldi var leikritið Eldhaf eftir Wajid Mouwad frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins og fékk hreint út sagt frábærar viðtökur. Eldhaf er stór saga, harmleikur um fortíðina sem skapar nútímann, sem höfðar beint til hjartans. Verkið hefur farið sigurför um heiminn, verið þýtt á tuttugu tungumál og sýnt í yfir 100 uppsetningum. Aðstanendur uppfærslu Borgarleikhússins á verkinu eru margir hverjir þeir sömu stóðu að sýningunni Elsku barn sem fékk 7 tilnefningar til Grímunnar á síðasta leikári. Lesa meira
 

12.1.2012 : Málþing um Jón Múla og Jónas Árnasyni

Í gær, 11. janúar 2011 varð Leikfélag Reykjavíkur 115 ára. Það var stofnað 11. janúar 1897 og er eitt af elstu starfandi félögum landsins.  Á undanförnum árum hafa verið haldin málþing/ félagsfundir í tengslum við afmæli félagsins.  Fjallað hefur verið um leikskáldin Jóhann Sigurjónsson og Guðmund Kamban, verk þeirra og æviferil.
Lesa meira
 

11.1.2012 : Axlar - Björn frumsýning í kvöld

Axlar-Björn, nýtt rammíslenskt verk úr smiðju Vesturports verður frumsýnt í Borgarleikhússins á miðvikudagskvöld kl 20. Axlar-Björn rekur öðrum þræði sögu þessa eins kaldrifjaðadta morðingja Íslandssögunnar en veltir einnig upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiðir til óhæfuverka. Lesa meira
 

10.1.2012 : Axlar - Björn, frumsýning á morgun miðvikudag

Axlar-Björn, nýtt rammíslenskt verk úr smiðju Vesturports verður frumsýnt í Borgarleikhússins á miðvikudagskvöld kl 20. Axlar-Björn rekur öðrum þræði sögu þessa eins kaldrifjaðadta morðingja Íslandssögunnar en veltir einnig upp sígildum spurningum um þá brenglun sem leiðir til óhæfuverka. Björn Hlynur Haraldsson skrifar verkið og leikstýrir en þeir Alti Rafn Sigurðarson og Helgi Björnsson fara með hlutverk Axlar-Björns. Lesa meira
 

28.12.2011 : Nú styttist í frumsýninguna á Fanný & Alexander

Fanný og Alexander hin ástsæla fjölskyldusaga Ingmars Bergmans verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins á þrettándanum, 6. janúar næstkomandi. Hér er sögð saga systkinanna Fannýjar og Alexanders sem alast upp á ástríku, hlýju heimili þar til faðir þeirra fellur óvænt frá og líf þeirra umbreytist í vondan draum. Leikgerðin byggir á sjónvarpsþáttum Bergmans sem hann stytti síðan í kvikmynd árið 1982. Myndin var síðasta kvikmyndaverk leikstjórans

Lesa meira
 

23.12.2011 : Vinningshafar í gjafakortaleik Borgarleikhússins

Við þökkum öllum kærlega fyrir að taka þátt í Gjafakortaleik Borgarleikhússins. Mikill fjöldi fólks skráði sig til leiks og tíu heppnir þátttakendur hafa unnið sér inn gjafakort í Borgarleikhúsið. Lesa meira
 

20.12.2011 : Fanný og Alexander frumsýning á Stóra sviðinu 6. janúar 2012

Fanný og Alexander hin ástsæla fjölskyldusaga Ingmars Bergmans verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins á þrettándanum, 6. janúar næstkomandi. Hér er sögð saga systkinanna Fannýjar og Alexanders sem alast upp á ástríku, hlýju heimili þar til faðir þeirra fellur óvænt Lesa meira
 

9.12.2011 : Hilmar Guðjónsson leikari hefur verið valinn í hóp 10 efnilegustu leikara Evrópu

Hilmar Guðjónsson leikari hefur verið valinn í hóp 10 efnilegustu leikara Evrópu, Shooting Star. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn í þennan hóp (eftir að skilyrði voru sett sem takmarka fjölda útvalinna við 10 leikara í allri Evrópu). Lesa meira
 

28.11.2011 : Gói og Eldfærin á DVD

N er hægt að kafa ofan í Eldfærin með Góa og Þresti Leó heima í stofu.

Gói & Eldfærin fékk frábærar viðtökur í Borgarleikhúsinu, sjö þúsund gestir komu og ferðuðust inn í töfraheim ævintýranna en sýningin tilnefnd til Grímunnar 2011 sem besta barnasýning ársins.

Lesa meira
 

23.11.2011 : Jesús litli kominn heim frá Spáni og fer aftur á Litla sviðið í vikulokin

Jólin koma með guðspjöllum trúðanna. Jesús litli hefur slegið rækilega í gegn síðustu tvö ár og fer nú aftur á svið fyrir jólin þriðja leikárið í röð, nk. laugardag 26.11.11. Jesús litli hlaut Menningarverðlaun DV 2009 og var valin besta leiksýning ársins á Grímunni vorið 2010. Lesa meira
 

22.11.2011 : Elsku barn snýr aftur á Nýja sviðið á fimmtudag

Verðlaunaverkið Elsku barn, eftir breska leikskáldið Dennis Kelly, snýr aftur á fjalir Nýja sviðsins fimmtudaginn 24. Nóvember nk. Elsku barn er nístandi saga móður sem sökuð er um að myrða börnin sín tvö. Hér er á ferðinni áleitið verk sem veltir upp ýmsum heimspekilegum spurningum um eðli sannleikans, réttlæti og lygi, hvernig lifa má við ófyrirgefanlegan glæp og óbærilegan sársauka.
Lesa meira
 

20.11.2011 : Jesús litli sló í gegn á Spáni

Sýning Borgarleikhússins á Jesú litla var sýnd í Principal leikhúsinu í Vitoria á Spáni í gærkvöldi sem hluti af hinni árlegu Alþjóðlegu Vitoria-leiklistarhátíð.  Leikhúsið tekur 1000 manns í sæti og var uppselt á sýninguna. Leikhópurinn flutti sýninguna í nýrri enskri þýðingu en hún var einnig textuð á spænsku.  Lesa meira
 

8.11.2011 : Prentsmiðjan Oddi gerist máttarstólpi Borgarleikhússins

Jón Ómar Erlingsson framkvæmdastjóri og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri undirrituðu samstarfssamning á Stóra sviði Borgarleikhússins að viðstöddum leikurum og listrænum stjórnendum Kirsuberjagarðsins.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Magnús Geir leikhússtjóri endurráðinn til næstu fjögurra ára

Aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur var haldinn í gærkvöldi. Þar tilkynnti Inga Jóna Þórðardóttir stjórarformaður að gengið hefði verið frá samkomulagi við Magnús Geir Þórðarson, sem gegnt hefur starfi leikhússtjóra síðan 2008, um endurráðningu hans til næstu fjögurra ára.  

Lesa meira
 

28.10.2011 : Kirsuberjagarðurinn frumsýndur í kvöld kl 20

Kirsuberjagarðurinn, síðasta og mest leikna leikrit Antons Tsjekhovs verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld, föstudaginn 28. október kl 20 Lesa meira
 

21.10.2011 : Fólkið í kjallaranum hætti fyrir fullu húsi

Fólkið í kjallaranum gekk fyrir troðfullu húsi í fyrravetur og aftur í haust. Nú hefur sýningin kvatt fjalirnar til að rýma til fyrir nýjum verkum. Sýningin verður sýnd á RUV síðar í vetur.

Lesa meira
 

11.10.2011 : Zombíljóðin lokasýning

Lokasýning á Zombíljóðunum verður á Litla sviðinu næstkomandi föstudag. Það kostar ekkert inn á sýninguna en tekið verður á móti frjálsum framlögum til Fjölskylduhjálpar Íslands. Aldrei áður hefur manneskjan fengið jafn mikla vitneskju um harm annara en sjáum við í raun og veru hvort annað?  Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica