50. sýningin á Fólkinu í blokkinni
Áhorfendur hafa bókstaflega flykkst í Borgarleikhúsið þetta leikárið en nú hafa um 30% fleiri gestir sótt sýningar leikhússins en á metári hingað til. Söngleikurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson hefur átt miklum vinsældum að fagna undanfarna mánuði. Á laugardaginn, 10. janúar, var söngleikurinn sýndur í 50. skipti en þar til viðbótar bætast sex forsýningar verksins. Miðað við aðsókn geta leikarar og tæknifólk allt eins átt von á því að sýna verkið 50 sinnum í viðbót því ekkert lát er á aðsókn. Þó er um að gera að hvetja áhugasama um að tryggja sér strax miða því áætlað er að ljúka sýningum í lok febrúar, til að rýma til fyrir nýrri frumsýningu á Stóra sviði, Milljarðamærin snýr aftur.
