Fréttir

Rústað – forsala hafin

13.1.2009

 

Það eru leikararnir Ingvar E. Sigurðsson, Björ Thors og Kristín Þóra Harladsdóttir sem leika í þessu magnaða verki sem olli nánast uppþoti þegar það var frumsýnt í Royal Court leikhúsinu. Gagnrýnendur ýmist féllu fram í tilbeiðslu eða reittu hár sitt yfir þessu fyrsta leikriti hinnar ungu og frökku Söruh Kane sem féll síðan fyrir eigin hendi langt fyrir aldur fram. Borgarleikhúsið er fyrst íslenskra leikhúsa til að sviðsetja verk Söruh Kane og í kjölfar frumsýningar á Rústað verða öll hin leikrit hennar flutt í sviðsettum leiklestrum. Kristín Eysteinsdóttir hlaut Grímuna sem leikstjóri ársins árið 2008 og setur nú upp sitt fyrsta verk sem fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið.

Kaupa miða!



Þetta vefsvæði byggir á Eplica