Fréttir

Opinn félagsfundur LR á sunnudag

15.1.2009

 

Þau Vigdís Finnbogadóttir sem nýverið var valinn sendiherra leiklistar í heiminum og Sveinn Einarsson sem kynnir doktorsritgerð sína munu ávarpa samkomuna. Tilkynnt verður hvaða leikskáld hefur verið valið sem fyrsta leikskáld sem starfar í Borgarleikhúsinu á vegum Leikritunarsjóðs Leikfélagsins. Margmiðlunarsýning verður opnuð um annan heiðurslistamann LR, Jón Sigurbjörnsson.

Á milli atriða flytja leikararnir Guðjón Davíð Karlsson og Hallgrímur Ólafsson tónlist úr sýningum LR í gegnum tíðina.

Boðið verður upp á ljúffenga súpu, kaffi og konfekt á meðan á dagskránni stendur. Það er ærin ástæða fyrir velunnara leiklistar að fjölmenna á samkomuna og bjóða með sér gestum og njóta góðrar stundar í leikhúsinu.

 

Dagskrá

 

1.      Opnun – Inga Jóna Þórðardóttir

Inga Jóna Þórðardóttir, formaður Leikfélags Reykjavíkur, setur samkomuna.

 

2. Tónlist úr sögu LR

Leikararnir Guðjón Davíð Karlsson og Hallgrímur Ólafsson flytja lög úr sýningum. (LR, t.d. úr Ævintýri á gönguför, Gísl og Ofvitanum.)

 

3.  Sendiherra leiklistar í heiminum – Vigdís Finnbogadóttir

Leikfélag Reykjavíkur samfagnar frú Vigdísi Finnbogadóttur, heiðursfélaga, fyrrverandi leikhússtjóra LR og fyrrverandi forseta Íslands, í tilefni þess að hún var heiðruð af Alþjóða leiklistarsambandinu (International Theatre Institute) sem einn sendiherra leiklistar í heiminum (World Theatre Ambassador).  Alþjóða leiklistarsambandið tilnefndi hana á 32. alheimsþingi samtakanna sem haldið var í Madrid 27. september ásamt Václav Havel, leikskáldi og fyrrverandi forseta Tékklands, Nóbelsskáldinu  Wole Soyinka frá Nígeríu, Girish Karnad, leikskáldi frá Indlandi, leikstjóranum Ellen Stewart frá Bandaríkjunum sem stofnaði La Mama leikhúsið í New York, Arnold Wesker, leikskáldi frá Bretlandi og rússneska leikstjóranum Anatolí Vassilíev.

 

4. Leiklist á Íslandi 1860-1920 – Sveinn Einarsson

Dr. Sveinn Einarsson, heiðursfélagi og fyrrverandi leikhússtjóri LR, kynnir doktorsritgerð sína sem hann varði við Háskóla Íslands árið 2006. Ritgerðin ber titilinn, A People´s Comes of Age, sem fjallar um íslenska leiklist 1860 – 1920. Meginkenningin sem kemur fram í rannsókn Sveins er að íslenskt leikhús hafi komist fyrr til listræns þroska atvinnumennskunnar en almennt hefur verið talið. Hann skoðar hugtökin áhugaleiklist og atvinnuleiklist og kannar hvaða merkingu þau hafa og sýnir fram á að íslensk leiklist varð ekki atvinnuleikhús á einni nóttu, þegar leikarar og annað leikhúsfólk flutti inn í Þjóðleikhúsið árið 1950 og byrjaði að sýna þar.

 

5. Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur. Tilkynnt um ráðningu fyrsta leikskáldsins

Tilkynnt verður um hvaða leikskáld verður fyrsta leikskáldið sem boðinn er árssamningur í Borgarleikhúsinu undir væng Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur.

Á aðalfundi Leikfélags Reykjavíkur 15. október 2007 var samþykkt stofnun sérstaks sjóðs til eflingar leikritunar. Markmið sjóðsins er að efla nýsköpun og fjölbreytni í íslenskri leikritun, auka vægi leikritunar í samfélaginu og stuðla að því að hún njóti virðingar í samfélagi lista. Annað megin markmið sjóðsins er að stuðla að auknum áhuga ungs fólks á leikritunarforminu. Til að ná markmiðum þessum er stefnt að því að sjóðurinn tryggi að alltaf verði að minnsta kosti eitt leikskáld starfandi við leikhúsið.

 

Formaður stjórnar Leikritunarsjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur. Aðrir í stjórn eru Brynjólfur Bjarnason, forstjóri og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri.

Stjórn sjóðsins velur skáld úr hópi umsækjenda og því boðið eins árs samningur við Borgarleikhúsið.

 

5. Margmiðlunarsýning opnuð um annan heiðursfélaga LR, Jón Sigurbjörnsson

Jón Sigurbjörnsson, leikari og heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur,  heiðraður með opnun margmiðlunarþáttar um hann í forsal Borgarleikhússins. Leikfélag Reykjavíkur ákvað fyrir nokkrum misserum síðan að heiðra ævistarf sex listamanna sinna sem allir hafa unnið ómetanlegt starf að uppbyggingu og framþróun Leikfélagsins og verið í framvarðarsveit þess um áratuga skeið. Þetta eru leikararnir Steindór Hjörleifsson, Jón Sigurbjörnsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Karl Guðmundsson og leikmyndahöfundurinn Steinþór Sigurðsson. Það var fyrst og fremst á leiksviðinu í Iðnó sem þau beittu sér, - á sviðinu sem lengst stuðlaði að vexti og viðgangi íslenskrar leiklistar. Í vor var þáttur um Steindór Hjörleifsson opnaður og nú er komið að  þætti Jóns Sigurbjörnssonar. Segja má að þetta sé  eitt af langtímaverkefnum Leikfélagsins þar sem þetta er tímafrek vinna, bæði í söfnun heimilda og ekki síður tæknilega. Vonandi er samt að þess verði ekki langt að bíða að allir listamennirnir verði komnir á margmiðlunarskjána í forsal Borgarleikhússins.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica