Fréttir
Þú ert hér - Jón Páll

Móttaka “sönnunargagna”

16.1.2009

 

Borgarleikhúsið og listrænir stjórnendur leiksýningarinnar "Þú ert hér", (Jón Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jónasson og Hallur Ingólfsson) sem fjallar um þau tímamót sem íslenska þjóðin stendur á um þessar mundir, lýsa eftir munum eða gripum sem endurspegla þær umbreytingar sem við höfum farið í gegnum upp á síðkastið. Þetta mætti kalla nokkurs konar sönnunargögn um á atburðarás sem við sem þjóð höfum gengið í gegnum á síðustu misserum.

 

Ef þú átt bankayfirlit, handklæði eða grillhanska sem fjármálastofnun hefur gefið þér, sjónvarpstæki sem þú keyptir á afborgunum af fyrirtæki sem er nú farið á hausinn þá endilega komdu í Borgarleikhúsið milli klukkan 14 og 16 á laugardaginn og talaðu við okkur. Við erum að safna sönnunargögnum en líka frásögnum. Það verður heitt á könnunni. Komdu og taktu virkan þátt í leikhúsinu þínu, kæri landsmaður.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica