Auður Jónsdóttir hreppir hnossið
Auður Jónsdóttir, rithöfundur, var í dag valin leikskáld Borgarleikhússins árið 2009 úr stórum hópi umsækjenda. Nýstofnaður Leikritunarsjóður mun hér eftir velja eitt leikskáld á ári hverju til starfa með félaginu og var Auður sú fyrsta sem hreppti hnossið. Hún mun því næsta árið starfa innan veggja hússins og skrifa verk sem stefnt er að því að sviðsetja. Þetta var tilkynnt á opnum félagsfundi í Borgarleikhúsinu í dag að viðstöddu fjölmenni. Á fundinum tók Vigdís Finnbogadóttir heiðursfélagi, fyrrverandi leikhússtjóri LR og fyrrverandi forseti Íslands við árnaðaróskum félagsins en hún var á dögunum heiðruð af Alþjóða leiklistarsambandinu (International Theatre Institute) sem einn sendiherra leiklistar í heiminum. Sveinn Einarsson kynnti doktarsritgerð sína og opnuð var margmiðlunarsýning um Jón Sigurbjörnsson, einn ástsælasta leikara landsin og einn af heiðurlistamönnum LR.
Það var margt um manninn á opnum félagsfundi LR í Borgarleikhúsinu í dag og dagskráin skemmtileg. Mestrar eftirvæntingar gætti þó eftir tilkynningu um hvaða leikskáld yrði fyrir valinu af nýstofnuðum Leikritunarsjóði sem hér eftir mun ráða eitt leikskád til starfa með Borgarleikhúsinu í eitt ár í senn. Fyrst til þess að hreppa hnossið var rithöfundurinn Auður Jónsdóttir. Að sögn Magnúsar Geirs Þórðarsons, leikhússtjóra Borgarleikhúsinss hefur þetta verið draumur lengi. „Það er mikill heiður fyrir okkur að fá Auði, margverðlaunaðan rithöfund, til þess að vinna með okkur, enda hefur hún sýnt það og sannað með afgerandi hætti að hún er í fremstu röð og við væntum miklis af samstarfinu.“
Margverðlaunaður höfundur
Auður Jónsdóttir er fædd 30. mars 1973. Hún starfar sem rithöfundur og sjálfstæður blaðamaður og hefur skrifað greinar og viðtöl fyrir ýmis tímarit og dagblöð. Smásaga hennar Gifting birtist í tímaritinu Andblæ haustið 1997.
Auður hefur skrifað fimm skáldsögur: Stjórnlaus lukka (1998), Annað líf (2000), Fólkið í kjallaranum (2004), Tryggðarpantur (2006) og Vetrarsól (2008), og hún hefur einnig sent frá sér tvær barnabækur fyrir almennan markað, Algjört frelsi (2001) sem hún skrifaði í samvinnu við Þórarin Leifsson myndskreyti, og Skrýtnastur er maður sjálfur (2002) sem er ævisaga Halldórs Laxness fyrir börn. Sú bók hlaut viðurkenningu Upplýsingar, félags íslenskra bókasafnsfræðinga sem vel unnið fræðirit fyrir börn og fyrir hana var Auður tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Hún var jafnframt kosin barnabók ársins í kosningu íslenskra bóksala en fleiri bækur Auðar hafa hreppt sæti á listum þeirra í gegnum árin.
Hún hefur einnig þrisvar verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki skáldverka, fyrir Stjórnlausa lukku, Fólkið í kjallaranum og Tryggðarpant, en verðlaunin hlaut hún 2004 fyrir Fólkið í kjallaranum. Fyrir þá bók var hún einnig tilnefnd af Íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2006 og bókin hlaut afar góðar viðtökur í Danmörku þegar hún kom út þar haustið 2006. Á þessu ári verður Tryggðarpantur gefinn út í Danmörku og Svíþjóð en forlagsrisinn Random House festi nýverið kaup á Vetrarsól sem á að gefa út í Þýskalandi, Austurríki og Sviss.
Auk þess hefur Auður skrifað tvær barnabækur fyrir börn með lestrarerfiðleika, útgefandi Námsgagnastofnun.
Um Leikritunarsjóð LR
Á aðalfundi LR 15. október 2007 var stofnaður Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur og formaður skipaður frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi félagsins. Aðrir í stjórn eru Brynjólfur Bjarnason, forstjóri og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri. Meðal markmiða sjóðsins er að efla nýsköpun og fjölbreytni í íslenskri leikritun, auka vægi leikritunar í samfélaginu og stuðla að því að hún njóti virðingar í samfélagi lista. Meðal leiða að markmiðum þessum er að tryggja að alltaf verði að minnsta kosti eitt leikskáld starfandi við Borgarleikhúsið.
Stjórn sjóðsins velur skáld úr hópi umsækjenda og því boðið eins árs samningur við Borgarleikhúsið. Laun, sem taka mið af starfslaunum listamanna, eru greidd mánaðarlega. Skáld sem valið er skal þegar hafa sýnt árangur við ritstörf og skáldskap, þó reynsla af leikritun sé ekki skilyrði. Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur þar á samningstímanum og verður hluti af starfsliði Borgarleikhússins.
Sendiherra leiklistar í heiminum – Vigdís Finnbogadóttir
Leikfélag Reykjavíkur samfagnaði frú Vigdísi Finnbogadóttur, heiðursfélaga, fyrrverandi leikhússtjóra LR og fyrrverandi forseta Íslands, í tilefni þess að hún var heiðruð af Alþjóða leiklistarsambandinu (International Theatre Institute) sem einn sendiherra leiklistar í heiminum (World Theatre Ambassador). Alþjóða leiklistarsambandið tilnefndi hana á 32. alheimsþingi samtakanna sem haldið var í Madrid 27. september.
Leiklist á Íslandi 1860-1920 – Sveinn Einarsson
Dr. Sveinn Einarsson, heiðursfélagi og fyrrverandi leikhússtjóri LR, kynnti doktorsritgerð sína sem hann varði við Háskóla Íslands árið 2006. Ritgerðin ber titilinn, A People´s Comes of Age, sem fjallar um íslenska leiklist 1860 – 1920. Meginkenningin sem kemur fram í rannsókn Sveins er að íslenskt leikhús hafi komist fyrr til listræns þroska atvinnumennskunnar en almennt hefur verið talið.
Margmiðlunarsýning um Jón Sigurbjörnsson
Jón Sigurbjörnsson leikari og heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur, var einnig heiðraður á fundinum með opnun margmiðlunarþáttar um hann í forsal Borgarleikhússins. Leikfélag Reykjavíkur ákvað fyrir nokkrum misserum síðan að heiðra ævistarf sex listamanna sinna sem allir hafa unnið ómetanlegt starf að uppbyggingu og framþróun Leikfélagsins og verið í framvarðarsveit þess um áratuga skeið. Þetta eru leikararnir Steindór Hjörleifsson, Jón Sigurbjörnsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og Karl Guðmundsson og leikmyndahöfundurinn Steinþór Sigurðsson
