Fréttir

Helgi Hálfdanarson látinn

26.1.2009

Fáar þjóðir geta státað af jafn mögnuðum og menningarlegum þýðanda sem hafði óbilandi trú á góðum og gömlum hugtökum eins og trúmennsku, vandvirkni, þolinmæði og ekki síst samviskusemi.

Helgi var einn af þeim mönnum sem skipta máli í menningarsögu landsins, einn risanna sem enginn kemst hjá því að sjá þótt þeir reyni hvað þeir geta að láta lítið fyrir sér fara.  

Leikfélag Reykjavíkur þakkar ómetanleg og ógleymanleg kynni.

 

Leikritaþýðingar Helga Hálfdanarsonar á leiksviðum Leikfélagsins:

Rómeó og Júlía 1964

Antígóna 1969

Öll veröldin er leiksvið 1972

Dauðadans 1974

Makbeð 1977

Ótemjan 1981

Draumur á Jónsmessunótt 1985

Hamlet 1988

Ífigenía í Ális 1994

Agamemnon 1994

Elektra 1994

Ofjarlinn 1998

Lífið er draumur 1998

Kóríólanus 1998

Hyppólítos Evrípídes.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica