"Vel unnin og mögnuð sýning"
Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi hélt ekki vatni yfir Rústað og gaf henni fimm stjörnur, en það er full hús stiga. Meðal þess sem hann sagði um sýninguna er: „Magnað – missið ekki af!... Í mínum huga er enginn vafi á því: Sarah Kane er í hópi merkustu leikskálda samtímaleikhússins. Blasted, fyrsta leikrit hennar, er eitt þeirra verka sem rísa upp úr... Það sem slær mig mest, eftir frábærlega vel heppnaða uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur, sem var frumsýnd nú fyrir helgi, er einkum þrennt. .. er í sínum tæra einfaldleik eitt hið fegursta í leikbókmenntum okkar tíma. Og það náði fullum áhrifamætti í flutningi aðalleikendann tveggja, Ingvars E. Sigurðssonar og Kristínar Þóru Haraldsdóttur. .. Á föstudagskvöldið var fannst mér ég ekki vera að horfa á neitt frekar en tilbrigði við þetta stóra stef, um dauða, glötun og frelsun – eða öllu heldur þrá eftir frelsun, von um frelsun. Eitthvað ævagamalt, sagt á algerlega nýjan hátt. Það er stórkostlegt að fá enn að lifa slíkar stundir í leikhúsinu... Það fer ákaflega vel um Blasted á Nýja sviði Borgarleikhússins sem er ekki síst að þakka Berki Jónssyni... Umbreyting rýmisins um miðjan leikinn er með því flottasta sem ég hef séð á íslensku sviði. Tónlistar- og hljóðeffektar Franks Hall og Jakobs Tryggvasonar sköpuðu rétt hughrif, voru hæfilega ágengir. Og sama má segja um sýninguna alla, sviðsetningu og leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Allt ber vitni um hárréttan skilning, hárrétta nálgun, smekkvísi og næmleika... Ingvar hefur ósvikna tilfinningu fyrir kaldranalegum en undir niðri hlýlegum húmor persónulýsingarinnar; leikur hans þegar á líður, gin Vítis opnast og árar þess leika lausum hala, er með því besta sem ég hef séð hann gera. Þessi túlkun verður jafnan talin eitt af bestu afrekum hins mikilhæfa leikara... Kristín Þóra Haraldsdóttir stóð sig einnig með prýði ... Björn Thors var líka góður í hermanninum... Í tengslum við sýninguna á Blasted efnir Leikfélagið til leiklestra á öðrum verkum Söruh Kane nú í febrúar. Það er einstaklega lofsvert framtak og sönn fyrirmynd öðrum leikhúsum... Og allt er þetta enn ein staðfesting þess sem maður þóttist svo sem vita fyrir: Leikfélag Reykjavíkur hefur nú náð listrænni forystu í íslensku leikhúslífi. Það blómstrar allt í höndunum á Magnúsi Geir.“
Í dómi Ingibjargar Þórisdóttur leiklistargagnrýnanda Morgunblaðsins segir m.a. um Rústað: "Vel unnin og mögnuð sýning...Kristín skilar hér góðu verki og er ánægjulegt að sjá hvernig hún vex enn sem leikstjóri... Leikararnir standa sig með prýði í þessu erfiða verki sem hlýtur að reyna á þá sem listamenn og manneskjur. Túlkun þeirra á þessum brotnu og ónýtu manneskjum var mjög góð og á engan hallað þótt hér sé tekið fram að Ingvar sýnir enn og aftur að hann er einn af okkar allra mögnuðustu leikurum. Leikmynda Barkar Jónssonar var fagmannlega unnin og vel úthugsuð. Lýsing og hljóð þjónuðu verkinu vel. Tónlistin, nokkrir píanóhljómar, undirstrikaði einmanaleika persónanna. Rústað er vel unnin og mögnuð sýning þar sem áhorfandinn er skilinn eftir í rúst."
Í Lostafulla listræningjanum í Ríkisútvarpinu sagði Hrafnhildur Hagalín: " Ég varð fyrir miklum áhrifum... Rústað er mjög áhrifarík sýning. Sýningin er mjög trú verkinu og kemur því afar vel til skila... Þetta er gríðarlega áhrifamikil sýning... Kristín er afskaplega magnaður leikstjóri... Rústað er virkilega fáguð og öguð... Leikararnir standa sig með einstakri prýði."
Í gagnrýni Tímarits Máls og menningar, TMM, segir m.a.: "Það greip mig óvænt tilfinning að lokinni sýningu á Rústað eftir Söruh Kane á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi: ég fann að ég var þakklát. Fyrir hvað? hugsaði ég hissa. Fyrir að horfa á manneskjur gera öðrum manneskjum mein? Nei, öllu heldur fyrir að sýna mér bakhliðina á fréttunum sem við lesum og heyrum á hverjum degi, sýna mér hvað þær þýða í raun og veru. Það er ekkert þægilegt. Mér varð ansi óglatt á köflum...
Þessi þrjú sýndu sjaldgæfa innlifun í hlutverk sín, og eiginlega er ástæða til að sjá sýninguna þó ekki væri nema til að upplifa það, einkum þó frábæra túlkun Ingvars á Ian. Jafnvel aftur á sjöunda bekk sást hvert svipbrigði og hvert viðbragð - og þau eru mörg og sum áður óséð á íslensku sviði. Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri hefur áður sýnt örugg tök sín á persónuleikstjórn - ég minni bara á Penetreitor - og henni skjöplast ekki hér. Börkur Jónsson sýnir enn fádæma snilli sína í sviðsmyndinni og þróun hennar og aðrir sviðslistamenn eiga líka skilið stórt prik fyrir sína vinnu.
Rústað er djarft verk eins og klifað hefur verið á, en hvað er það miðað við það sem gerist í fréttum blaða, sjónvarps og útvarps á hverjum einasta degi. Við lifum ekki í fögrum heimi, og það er brýnt að minnast þess, ekki síst núna þegar okkur finnst við eiga svo bágt"
Þorgerður E. Sigurðardóttir, leiklistargagnrýnandi Víðsjár á Rás 1 fór fögrum orðum um sýninguna og verkinu. Hún sagði m.a.: „Það er óhætt að segja loksins – loksins! ... Ég hef beðið lengi eftir því að sjá Rústað á sviði... Að sýningu lokinni fann ég fyrir tregaþyngslum og sat eftir með grátstaf í kverkunum“
Silja Aðalsteinsdóttir var fengin til að gefa sýningunni umsögn fyrir Dægurmálaútvarp Rásar 2. Þar sagði hún m.a.: „Ólíkt öllu sem sést hefur á sviði hérlendis... Þessi sýning snerti mig raunverulega og mjög djúpt... ég var alveg við það að kasta upp á einum tímapunkti... Þessi sýning sýnir hvað leikhús hefur miklu meiri slagkraft en sjónvarp eða bíó...“
Páll Baldvin Baldvinsson gaf sýningunni þrjár stjörnur í Fréttablaðinu og sagði m.a.: „Athygslisverð... Auðvitað er „gaman“ að sjá þetta verk...".
