Fréttir
sannleikurinn_haus_vefur copy

Sannleikurinn - frumsýning í kvöld!

6.2.2009

Í kvöld, föstudaginn 6. febrúar, frumsýnir Borgarleikhúsið í samstarfi við 3Sagas og Helga Hermannsson nýjan einleik Péturs Jóhanns Sigfússonar og Sigurjóns Kjartanssonar, Sannleikurinn. Þegar er uppselt á 20 sýningar. Leikstjóri söngleiksins er Stefán Jónsson.

Pétur Jóhann Sigfússon þeysist um víðan völl í uppljóstrun sinni um lífsins sannleika í nýju verki eftir hann og Sigurjón Kjartansson. Hinn alvitri hefur fundið tilgang lífsins. Í Sannleikanum um lífið fást svör við spurningum eins og: Er dagurinn styttri hjá hundum? Afhverju eru fjögur hólf fyrir þvottaefni? Á ég eftir að endurholgast? Hvernig? Sem skítafluga?
Leiðin að sannleikanum hefur verið löng og ströng en nú er hann loksins fundinn eftir fjögurra ára leit og mikla vinnu.  Þar með rætist gamall draumur Péturs sem hafði um nokkra hríð látið sér dreyma um að stíga á svið með eigið verk.
Pétur Jóhann sem hefur notið vinsælda sem leikari í sjónvarpi og kvikmyndum. Hann stígur nú í fyrsta sinn á leiksvið í þessu einlæga og sprenghlægilega leikverki undir styrkri stjórn Stefáns Jónssonar.
Sett upp af 3 sagas og Helga Hermannssyni í samstarfi við Borgarleikhúsið



Þetta vefsvæði byggir á Eplica