Fréttir

"Hver segir að leikhús eigi að vera auðvelt?"

7.2.2009

Rústað - orð sem vel mætti nota um íslenskt samfélag eins og nú er ástatt. Rústað - leikverk sem setti Bretland á annan endann fyrir hálfum öðrum áratug. Rústað - þrekraun fyrir áhorfendur í Borgarleikhúsinu núna. Verkið er eins og skrifað inn í íslenskan samtíma, jafnerfiður og hann er. En hver segir að leikhúsið eigi að vera auðvelt?

Upplifun þeirra sem sáu þetta magnaða verk Söru Kane á frumsýningu um síðustu helgi var í flestum tilfellum á sömu lund; fólk var slegið, jafnvel miður sín. Fann fyirr því hve efniviðurinn er svívirðulegur og það sem verra er: sannur.

Margir spurðu hvernig hægt væri að skrifa leikrit um svona hrylling? En urðu um leið að svara fyrir hvernig við getum lifað í heimi sem umber svona hrylling. Sú spurning hlýtur að vera það sem Sarah Kane lagði upp með og kastar síðan eins og logandi heitri kartöflu í kjöltuna á prúðbúnum leikhúsgestum.

Það þarf hugrekki til að bjóða Íslendingum í fjárhags- og tilheyrandi sálarkreppu upp á svona verk í skammdeginu. Hugrekkið ber að lofa. Þeir sem töldu Magnús Geir standa fyrir auðseljanlegt glys og glamúr í íslensku leikhúslífi verða nú að éta hattinn sinn. En að því sögðu er aldrei að vita nema einmitt þetta seljist núna. Að fólk sé búið að fá nóg af skemmtihjali eða vandamálum þeirra sem ekkert skortir nema döngun til að takast á við lífið.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica