Sviðsettir leiklestrar á verkum Söru Kane að hefjast
Veislan hefst þann 10. febrúar næst komandi á öðru verki Kane, Ást Fedru, síðan verða verkin leiklesin í tímaröð og endað á 4:48 geðtruflun þann 3. mars 2009.
Þetta er sannarlega einstakt tækifæri til að heyra þessi verk flutt í sviðsettum leiklestrum en ekkert þeirra hefur verið borið á borð fyrir íslenska áhorfendur áður.
Sarah Kane (1971-1999) olli straumhvörfum í leikritun strax með fyrsta leikriti sýnu Rústað. Það er sérstakt ánægjuefni að geta boðið íslensku leikhúsfólki upp á þessa fyrstu sviðsetningu á verkum hennar hérlendis.
Í hverjum leiklestri er einn leikstjóri fenginn til að stýra verkinu, hann fær eina viku til undirbúnings með leikurum og verður hver leiklestur aðeins fluttur einu sinni á þriðjudagskvöldum í febrúarmánuði og fram í byrjun mars.
Miðaverð á leiklestrana er einungis 1500 krónur.
Ef keyptir eru miðar á öll verkin er einungis greitt fyrir þrjá, eða 4500 krónur.
Miðasala er hafin.
Takmarkaður sætafjöldi er í boði. Því gildir hið fornkveðna, fyrstur kemur fyrstur fær.
Vinsamlegst snúið ykkur til miðasölu til þess að nýta ykkur
tilboðið. Síminn er 568 8000.
