Fólkið í blokkinni kveður senn
Það er alltaf í nógu að snúast í Borgarleikhúsinu. Það styttist í frumsýningu á Milljarðarmærinni á Stóra sviðinu auk þess sem Fló á skinni er enn sýnd fyiri fullu húsi. Þrátt fyrir að harðduglegt starfsfólk leikhússins sé allra vilja gert er illa mögulegt að halda úti þremur stórum sýningum á Stóra sviðinu á sama tíma. Það er því um að gera að draga það ekki á langinn að tryggja sér miða á Fólkið. Miðasalan á netinu sefur aldrei og það má nánast segja það sama um starfsfólk miðasölunnar. Nú er að drífa sig og hrífast með Fólkinu í blokkinnu áður en það verður og seint. Ólafur Haukur hefur sannarlega snert taug í landanum með þessum fallega söngleik.
