Milljarðamærinni fagnað ákaft
Íbúar ónefnds bæjarfélags í efnahagshruni eygja vonarglætu um endurreisn en hún felur í sér blóðuga fórn. Leikstjórn er í höndum Kjartans Ragnarssonar en nokkuð er um liðið frá því að hann leikstýrði síðast hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Margar af þeim leiksýningum sem hann hefur tekið þátt í að skapa hafa orðið eftirlæti áhorfenda og gengið fyrir fullu húsi í langan tíma. Það eru þau Jóhann Sigurðarson og Sigrún Edda Björnsdóttir sem leika aðalhlutverkin og Hilmir Snær Guðnason verður í hlutverki allra þriggja fyrrverandi eiginmanna Milljarðamærinnar. Alls taka um tuttuga manns þátt í sýningunni, leikarar og tónlistarmenn. Leikmyndahönnuður og höfundur leikgerðar ásamt Kjartani er Gretar Reynisson. Gísli Rúnar Jónsson þýddi.
Þetta magnaða verk Friedrich Dürrenmatts var frumflutt árið 1956 og er löngu orðið sígilt. Það er reglulega sett upp víða um heim og hefur verið uppspretta dansverka, söngleikja og ópera enda sagan einkar mögnuð og krassandi. LR sýndi leikritið árið 1965, þá undir titlinum Sú gamla kemur í heimsókn.
