Merki Borgarleikhússins þótti það besta
Í síðustu viku hélt markaðsfólk á Íslandi sína uppskeruhátið á Ímark-deginum svokallaða en þar eru meðal annars veitt verðlaun fyrir það sem skara þótti fram úr á líðnu ári. Borgarleikhúsið hlaut verðlaun fyrir besta nýja firmamerkið á síðasta ári. Á hátíðinni féllu alls 5 af þeim 14 viðurkenningum sem voru í boði í skaut auglýsingastofunnar Fíton, sem hefur unnið með Borgarleikhúsinu frá því síðasta vor og teiknaði meðal annars nýja merkið. Auk þess héldu ísenskir teiknarar sína uppskeruhátíð fyrir skemmstu og þar fékk Hrafn Gunnarson, grafískur hönnuður á auglýsingastofunni Fíton, verðlaun fyrir mörkun (branding) á nýju útliti Borgarleikhússins. Við óskum góðum samstarfsmönnum okkar til lukku með frábæran árangur.
