Fréttir
Söngvaseiðbörn í viðtali við Ísland í dag

Æfingar hafnar á Söngvaseiði

12.3.2009

Veturinn hefur verið ansi fjörlegur fyrir börnin tólf sem valin hafa verið til þess að fara með hlutverk Trapp-systkinanna. Þau hafa komið nokkrum sinnum í prufur og lagt mikinn tíma og metnað í að standa sig. Leitað var að börnum sem gátu leikið, sungið og dansað og af öllum þeim gríðarega fjölda sem sótti um þóttu þau henta best. Valið var þó alls ekki auðvelt því ótrúlega mörg hæfileikarík börn heimsóttu Borgarleikhúsið í áheyrnarprufunum.

Æfingar eru nú komnar á fullt en ungu stjörnurnar þurftu þó að taka sér stutt hlé frá æfingum dagsins til þess að sinna viðtölum eins og stórstjörnum sæmir. Það var Sindri Sindrason sem spjallaði við krakkana og verður hægt að sjá útkomuna í þættinum Ísland í dag í kvöld (fimmtudag 12. mars). Krakkarnir sem leika munu í Söngvaseiði heita: Árni Beinteinn Árnason, Egill Friðriksson, Lilja Eivor Gunnarsdóttir, María Ólafsdóttir, Jakob Van Oosterhout, Einar Karl Jónsson, Agnes Gísladóttir, Hólmfríður Hafliðadóttir, Rebekka Ósk Svavarsdóttir, Áslaug Lárusdóttir, Sara Lind Styrmisdóttir og Steinunn Lárusdóttir. 

Söngvaseiður verður frumsýndur 8. maí næstkomandi en forsala miða hefst eins og áður sagði, miðvikudaginn 25. mars.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica