Fréttir

Forsala á Söngvaseið hefst á miðvikudag kl. 10.

21.3.2009

 

Það ber heldur betur vel í veiði fyrir notendur VISA greiðslukorta á miðvikudaginn þegar forsala hefst á Söngvaseið. Á þessum degi býðst þeim að kaupa allt að 10 miða á söngleikinn með 1000 króna afslætti hvorki meira né minna. Frá og með fimmtudegi njóta VISA kreditkortahafar 500 króna afsláttar af miðum. Tilboðið gildir á fyrstu 20 sýningarnar. Það margborgar sig því að tryggja sér miða strax á miðvikudaginn. Athugið að tilboðið gildir hvort sem miðar eru keyptir hér á vef Borgarleikhússins eða í miðasölu.

Söngvaseiður hefur verið nefndur söngleikurinn sem allur heimurinn elskar enda fara þar saman einstaklega falleg og hugljúf saga og tónlist sem er orðin klassísk. Ævintýri Maríu og Von Trapp fjölskyldunnar verður frumsýnt á Stóra sviði  Borgarleikhússins 8. maí næstkomandi og sýningin verður öll hin glæsilegasta, auk fjölda leikara og kórs mun ellefu manna hljómsveit taka þátt í flutningi söngleiksins. Það eru þau Vlagerður Guðnadóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson sem fara með hlutverk Maríu og Von Trapp.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica