Fréttir

Metsala á Söngvaseið

25.3.2009

Fullt hefur verið út úr dyrum í miðasölu Borgarleikhússins í allan dag. Þegar er alveg uppselt á 23 sýningar á söngleiknum sem allur heimurinn elskar.Það hefur heldur betur verið annríki í Borgarleikhúsinu í dag og margir hafa átt erfitt með að ná í miðasölu í gegnum síma. Þeim sem ætla að kaupa miða á Söngvaseið er bent á að nú þegar er orðið uppselt fram í júní. Bætt hefur verið við nýjum sýningum en það styttist í að uppselt verði út leikárið. Það er því um að gera að hafa hröð handtök. Mikil eftirvænting hefur verið fyrir uppsetningu Borgarleikhússins á Söngvaseið, vinsælasta söngleik allra tíma. Sem kunnugt er tóku um 4000 börn þátt í áheyrnarprufum fyrir verkið en hópurinn sem valinn var hefur æft stíft með öðrum listamönnum frá því í lok janúar.   Þegar var leikárið orðið einstakt í Borgarleikhúsinu, áhorfendur hafa aldrei verið fleiri í sögu leikhússins og áskriftarkortasala sló öll fyrri met í upphafi leikárs. Nú er orðið ljóst að síðari hluti leikársins verður einnig sögulegur.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica