Fréttir

"Í samtali við líðandi stund"

Borgarleikhúsið fylgist með

29.3.2009

 

Mælt með:

Í samtali við líðandi stund

Borgarleikhúsið fylgist með

Það verður seint sagt um Borgarleikhúsið að það sé ekki með puttann á púlsinum í vetur. Það hefur Borgarleikhúsið gert með stæl og vakið fyrir vikið mikla athygli. Sýning á verkinu Rústað í janúarlok kom eins og nístandi löðrungur beint inn í umræðu fjölmiðla um grimmilegt ofbeldi á Gaza fyrr í mánuðnum. Sjokk? Já. Kannski af því að það sýndi okkur harðan raunveruleikann.

Einleikurinn Rachel Corrie tekur beint á ofbeldinu á Gaza og nýjasta sýningin, Sjö gyðingabörn, sem aðeins er mánaðargamalt verk, hnykkir enn á umræðu lifandi stundar um ofbeldi - ekki bara á Gaza, heldur alls staðar á öllum tímum. Milljarðamærin rímar svo fullkomlega við umræðu dagsinsum græðgi og vald peninganna og það gerir væntanlega líka frumsýningarverk þessarar helgar, Þú ert hér. Með góðu verkefnavali gerir Borgarleikhúsið sig gildandi og beinan þátttakanda í samfélagsumræðunni.

begga@mbl.is

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica