Ragnheiður Gröndal syngur í Ökutímum
Sýningar á verðlaunaleikritinu Ökutímar hefjast í Borgarleikhúsinu 2. maí næstkomandi en uppsetning verksins fékk
afbragðs viðtökur hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta ári. Söngkonurnar Lay Low og Ragnheiður Gröndal munu af þessu tilefni hljóðrita nýja útgáfu lagsins Saman en lagið er eitt fjölmargra sem Lay Low samdi fyrir sýninguna og hampaði Grímunni fyrir. Hjólin snúast hratt hjá Lay Low sem nýverið gerði útgáfusamning við stærsta óháða útgefanda heimsins. Í tengslum við það er Lay Low bókuð við spilamennsku víða um heim nær allt þetta ár og því var ljóst að hún gæti ekki tekið þátt í flutningi Ökutíma þótt hún glöð vildi. Ragnheiður Gröndal tekur við keflinu af Lay Low og flytur tónlistina í sýningunni en hún hefur á undanförnum árum sungið sig inn í hjarta þjóðarinnar með einstakri rödd og fallegum lagasmíðum. Miðasala hefst miðvikudaginn 15. apríl en mikill spenningur virðist vera fyrir sýningunni hjá leikhúsáhorfendum í Reykjavík.
Ökutímar voru frumfluttir í New York árið 1997 og fékk leikverkið Pulitzer-verðlaunin 1998. Uppsetning LA hlaut afar jákvæða dóma og mikla aðsókn á Akureyri og starfsfólk Borgarleikhússins hefur fundið fyrir miklum spenningi fyrir sýningum verksins í Reykjavík. Rétt er að benda á að sýningartími er takmarkaður en verkið verður eingöngu sýnt í einn mánuð og því ættu unnendur góðra leiksýningar að tryggja sér miða í tíma.
Ökutímar er margslungið leikrit sem segir þroskasögu ungrar stúlku, Lillu. Fjölskylda hennar er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt. Hér er á ferðinni þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó drifin áfram af heillandi húmor.
Þröstur Leó Gunnarsson fékk Grímuverðlaun fyrir frammisöðu sína í sýningunni og tónlistarkonan Lay Low hlaut Íslensku leiklistarverðlaunin, Grímuna, fyrir tónlistina sem hún samdi fyrir uppsetninguna. Sökum mikilla anna getur hún ekki tekið þátt í Ökutímum í þetta skiptið, þó glöð vildi, því árið er orðið undirlagt af kynningar og tónleikaferðum erlendis. Það er önnur glæsileg tónlistarkona, Ragnheiður Gröndal, sem tekur við keflinu af Lovísu og flytur tónlistina í sýningunni. Ragnheiður er ein allra vinsælasta tónlistarkona landsins sem hefur heldur betur slegið í gegn á síðustu árum með seiðandi rödd sinni og stórfínum lagasmíðum og mun án efa standa sig með glæsibrag líkt og Lovísa.
