Fréttir

Ein rödd skiptir máli

17.4.2009

Dagskrá:

Samtal leikhússins og áhorfenda – Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhússins hefur dagskrána og fjallar um hvernig leikhúsið kappkostar að eiga í virku samtali við samtíma sinn.

Ein rödd skiptir máli - foreldrar  Rachel Corrie, Craig og Cindy Corrie segja frá  persónulegri reynslu sinni af því að halda baráttu dóttur sinnar áfram, uppsetningu verksins víða um heim og þeim viðbrögðum sem það hefur vakið. Þau eru nýkomin af Gaza svæðinu og sýna myndir og lýsa ástandinu eins og það blasti við þeim.

Hlé

Leitin að raunveruleikanum - Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri og leikhúsfræðingur fjallar um  gildi heimildaleikhúss

Að brjótast inn í stærsta fangelsi í heimi – Sveinn Rúnar Hauksson læknir segir frá
áskorunum í hjálparstarfi

7 gyðingabörn – 10 mínútna leikrit fyrir Gaza- eftir Caryl Churchill í leikstjórn Graeme Maley. Þýðandi Jón Atli Jónasson. Leikarar: Ásta Sighvats Ólafsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Harpa Arnardóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Jóhanna Jónas, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Páll Sigþór Pálsson, María Ellingsen, Sólveig Arnarsdóttir og Sólveig Guðmundsdótir.


Fundarstjóri er María Ellingsen, leikari og leikstjóri.
Aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.

Leikritið “Ég heiti Rachel Corrie” sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 19. mars síðastliðinn hefur vakið athygli á einu stærsta pólitíska málefni samtímans – deilu Ísraels og Palestínu. Verkið hefur hlotið lof gagnrýnenda og fengið feikna góð viðbrögð áhorfenda.

Síðustu sýningar á “Ég heiti Rachel Corrie” eru kl. 22.00 laugardaginn 18. apríl og kl. 20.00 sunnudaginn 19. apríl. Foreldrar Rachel Corrie verða viðstaddar báðar sýningarnar og svara spurningum áhorfenda að leiksýningunni lokinni.

Craig og Cindy Corrie hafa haldið fyrirlestra víða um heim í þau sex ár sem liðin frá því að dóttir þeirra lét lífið við sjálboðastörf í Palestínu. Eins og áður sagði eru þau væntanlegt til Íslands 16. apríl og eru fús til að veita fjölmiðlum viðtöl en þau eru nýkomin frá Gaza svæðinu í Palestínu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica