Gleðilegt sumar!
Ástsælasti söngleikur allra tíma, Söngvaseiður, verður frumsýndur 8. maí og þegar eru 30 sýningar uppseldar. Nýjar aukasýningar eru þegar komnar í sölu. Ökutímar verða frumsýndir 2. maí og í gær var bætt við nýjum aukasýningum enda var orðið uppselt á allar sýningar sem í boði voru. Djúpið, nýr einleikur Jóns Atla í flutningi Ingvars E. Sigurðarsonar verður frumsýndur í lok maí og í byrjun júní verður frumsýning á sumarverki leikhússins, Við borgum ekki eftir Dario Fo.
