Höfundur Ökutíma væntanlegur
Vogel mun að sjalfsögðu sjá sýningu á verkinu og auk þess taka þátt í umræðum með listrænum stjórnendum og leikurum sýningarinnar. Umræðurnar verða að lokinni sýningu föstudaginn 22. maí. Enn eru lausir miðar á þá sýningu.
Paula Vogel er fædd í Bandríkjunum og hefur frá árinu 1974 skrifað fjölda leikrita. Þekktasta verk hennar er þó án vafa
Ökutímar, eða How I learned to drive, eins og það heitir á frummálinu. Leikrit Vogel eiga það flest sammerkt að snúast um viðkvæm og eldfim málefni. Haft er eftir henni að hún skrifi einvörðungu um það sem hefur bein áhrif á líf hennar. Til að skrifaði hún leikritið The Baltimore Waltz sem sem einkonar viðbragð við dauða bróður síns, Carl, en hann lést af völdum AIDS. Fyrir verkið var Vogel sæmd Obie verðlaununum árið 1992.
Koma Vogel til Íslands er sannkallaður hvalreki á fjörur leikhúsunnenda sem fá nú einstakt tækifæri til þess að hitta hana og heyra hana ræða verk sín og svara spurningum um hvaðeina sem þeim viðkemur.
