Fréttir

Fagnaðarlátum ætlaði ekki að linna!

9.5.2009

Eftir margar mánaða undirbúning,  áheyrnarprufur, söngþjálfun og æfingar var Söngvaseiður loks frumsýndur í gærkvöldi. Eftirvæntingin var mikil enda þegar orðið uppselt á yfir 30 sýningar. Spennan lá í loftinu þegar prúðbúnir frumsýningargestir á öllum aldri streymdu í leikhúsið. Framundan er stíf sýningarkeyrsla því söngleikurinn verður sýndur sex sinnum í viku fram að sumarleyfi.

Nýjum aukasýningum í lok maí og byrjun júní hefur verið bætt við. Því eru enn örfá sæti í boði fyrir sumarleyfi leikhússins en annars er allt uppselt.

Ýmsar umsagnir er að finna á netinu frá ánægðum leikhúsgestum. Fyrstu dómar hafa einnig birst og eru þeir vægast sagt afar jákvæðir. Silja Aðalsteinsdóttir gagnrýnandi Tímarits Máls og Menningar (TMM) lofar sýninguna hásert og dregur sérstaklega fram Valgerði í hlutverki Maríu, segir börnin vera dásamleg og að Þórhallur Sigurðsson leikstjóri hafi sannarlega átt skilið það standandi uppklapp sem sýningin hlaut á frumsýningu. Dóminn má lesa í heild sinni hér:

Dómur TMM: http://www.tmm.is/default2.asp?strAction=getPublication&intPublId=1758 

 Í dómi á Pressunni segir m.a.: "Þakið ætlaði að rifna af Borgarleikhúsinu undir kl. 23 í gærkvöldi í nær endalausu uppklappi eftir velheppnaða frumsýningu á söngleiknum Söngvaseiði (e. Sound of Music). Pressan mælir hiklaust með sýningunni og segir hana stórkostlega skemmtun sem komi öllum í gott skap... Leikfélag Reykjavíkur hefur greinilega lagt allt undir í þessari sýningu og uppsker ríkulega. Útkoman er hreint frábær og stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Leikhópurinn er vel samansettur, börnin sem syngja og leika vekja aðdáun fyrir framkomu sína og áhorfendur koma af sýningunni syngjandi kátir, miklu glaðari og bjartsýnni en fyrr. Er hægt að biðja um það betra?“

Dómur Pressunnar: http://pressan.is/Frettir/Lesafrett/songvaseidur-frumsyndur-i-borgarleikhusinu-storkostleg-skemmtun/ 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica