Fréttir

Paula Vogel sá Ökutíma

Höfundur Ökutíma, Paula Vogel, sá sýningu á Ökutímum síðastliðið föstudagskvöld

25.5.2009

Þátttaka í umræðunum var mjög góð og áhorfendur spurðu bæði höfund verksins og leikara fjölmargra spurninga enda efniviður verksins áhugaverður. Vogel var meðal annars spurð út í hvers vegna hún ákvað að skrifa verkið og svaraði því til að fyrsta hugmyndin hafi komið til hennar sem mynd af manni í baksýnisspegli bifreiðar. Hún var einnig spurð að því hvernig henni hafi fundist íslenska uppfærslan og var Vogel hæstánægð með hana. Hún hrósaði leikurunum í hástert og sagðist hafa verið snortin af túlkun þeirra á persónum verksins. Paula Vogel hélt einnig fyrirlestur í Listaháskóla Íslands á meðan á dvölinni stóð sem þótti mjög áhugaverður.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica