Leikrit eftir átján konur
Auður Jónsdóttir leiðbeindi átján einstæðum mæðrum í skapandi skrifum
Námskeiðið var á vegum Kvennasmiðju Námsflokka Reykjavíkur og segir Auður að upphaflega hafi ætlunin eingöngu verið sú að leiðbeina konunum. Áhugi þeirra var hins vegar svo mikill að úr urðu tvö leikrit. Verkin verða leiklesin í Borgarleikhúsinu af leikurum hússins undir styrkri stjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Leiklesturinn hefst kl. 11.30 á Nýja sviðinu.
