Flestar Grímutilnefningar til Borgarleikhússins
Leiksýningarnar Þú ert hér og Dauðasyndirnar eru tilnefndar sem sýningar ársins en auk þeirra eru tilnefndar sýningarnar Steinar í djúpinu í uppsetningu Lab-Loka, Húmanimal í uppsetningu leikhópsins Ég og vinir mínir og Utan gátta í uppsetningu Þjóðleikhússins.
LR hlýtur sjálft 22 tilnefningar sem er það mesta sem sýningar þess hafa hlotið en að auki fagna samstarfsaðilar leikhússins góðu gengi, t.d. hlaut Íslenski Dansflokkurinn fimm tilnefningar.
Borgarleikhúsið hefur átt mikilli velgengni að fagna þetta leikárið og fjöldi eftirminnilegra sýninga ratað á fjalirnar og vakið verðskuldaða athygli. Afhending Grímuverðlaunanna fer fram 16. júní næstkomandi í Borgarleikhúsinu.Tilnefningarnar eru kærkominn endir á aðsóknarmesta leikári í sögu Borgarleikhússins
Tilnefningar LR 2009:
DAUÐASYNDIRNAR
· Sýning ársins
Dauðasyndirnar
· Leikkona ársins í aðalhlutverki
Halldóra Geirharðsdóttir
· Leikkona ársins í aðalhlutverki
Harpa Arnardóttir
· Leikari ársins í aðalhlutverki
Bergur Þór Ingólfsson
· Leikstjóri ársins
Rafael Bianciotto
· Leikskáld ársins
Rafael Bianciotto og leikhópurinn
MILLJARÐAMÆRIN SNÝR AFTUR
· Lýsing ársins
Björn Bergsteinn Guðmundsson
· Búningar ársins
Filippía I. Elísdóttir
· Leikmynd ársins
Gretar Reynisson
· Leikari ársins í aukahlutverki
Bergur Þór Ingólfsson
· Leikkona ársins í aðalhlutverki
Sigrún Edda Björnsdóttir
SÖNGVASEIÐUR
· Söngvari ársins
· Valgerður Guðnadóttir
ÞÚ ERT HÉR
· Sýning ársins
Þú ert hér
· Hljóðmynd ársins
Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson
· Leikstjóri ársins
Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson
· Leikskáld ársins
Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson
VESTRIÐ EINA
· Leikari ársins í aðalhlutverki
Björn Thors
RÚSTAÐ
· Lýsing ársins
Þórður Orri Pétursson
· Leikmynd ársins
Börkur Jónsson
· Leikari ársins í aðalhlutverki
Ingvar E. Sigurðsson
FÓLKIÐ Í BLOKKINNI
· Tónlist ársins
Ólafur Haukur Símonarson
· Leikkona ársins í aukahlutverki
· Halldóra Geirharðsdóttir
