Fréttir

Woyzeck á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Danmörku

Uppsetning Borgarleikhúsins og Vesturports á Woyzeck frumsýnd í Muskihuset í Árósum í kvöld

15.6.2009

Uppsetning Vesturports á Woyzeck hefur verið eftirsótt um allan heim og er þetta áttunda utanferð hópsins með verkið. Áður hefur sýningin verið sett upp hér á Íslandi, í Hollandi, Bretlandi, Þýskalandi, Spáni, Suður-Kóreu og síðast í New York þar sem henni var vel tekið. Leikverkið Woyzeck er eftir Georg Büchner og er verkið eitt þekktasta og áhrifamesta leikrit þýskrar leikritunar, fyrst útgefið 1879, en fyrst flutt 1913. Uppsetningin nú er sannkölluð leikhússprengja þar sem leikarar fljúga ýmist um sviðið eða synda um í stórum glerbúrum. Tónlistin í sýningunni er eftir Nick Cave og má segja að sýningin marki upphaf á samstarfi hans og Vesturports og mun Nick Cave taka þátt í næsta samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Vesturports sem er ný leikgerð af öðru klassísku verki - Faust eftir Goethe.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica