Fréttir

Gríman, íslensku leiklistarverðlaunin afhent í Borgarleikhúsinu

„Borgarleikhúsið er staður þar sem töfrar verða til á hverjum degi.“

16.6.2009

 

Við þetta tækifæri var heiðursverðlaunahafinn Helgi Tómasson, dansari, danshöfundur og dansflokksstjóri, hylltur af hópi dansara á sviðinu og lófaklappi grímugesta.   

Þetta árið var Borgarleikhúsið með flestar Grímu tilnefningar, alls tuttugu og tvær og uppskar meðal annars Valgerður Guðnadóttir Grímu sem Söngvari ársins fyrir töfrandi söng sinn í Söngvaseið.

Björn Thors fékk Grímuna sem leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Vestrið eina og Bergur Þór Ingólfsson sem leikari í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í Milljarðarmærin snýr aftur. Utan gátta var valin leiksýning ársins.

Borgarleikhúsið óskar öllum Grímuverðlaunahöfum til hamingju með kvöldið um leið og við hlökkum til næsta leikárs með okkar frábæra listafólki, því eins og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri sagði í kynningu sinni í kvöld, „Borgarleikhúsið er staður þar sem töfrar verða til á hverjum degi.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica