Fréttir

Dauðasyndirnar og Þú ert hér aftur á svið Borgarleikhússins

Tækifæri til að sjá bestu sýningar liðins leikárs

29.6.2009

Dauðasyndirnar

þarf vart að kynna þar sem verkið sló rækilega í gegn síðasta vetur. Sýningin var tilnefnd sem sýning ársins nú í vor og vegna fjölda áskoranna var ákveðið að bæta við örfáum sýningum í haust. En gaman er að segja frá því að trúðarnir eru ekki hættir að reyna skilja mannskynssöguna og stóratburði hennar. Þau birtast á sviði Borgarleikhúsins í nýju verki í vetur undir leikstjórn Benedikts Erlingssonar sem er trúðsleikur vel kunnur. Hin margrómaða söngkona Kristjana Stefánsdóttir sér aftur um tónlistarstjórnunina en hún mun líka taka þátt í sýningunni sem ófyrirleitni trúðurinn Bella. Í verkinu munu þau Barbara, Bella og Úlfar túlka á sinn trúðslega og einlægan hátt stóratburð úr mannkynssögunni sem margir hafa skrifað um.


Það sama á við um verkið Þú ert hér sem einnig var tilnefnt sem sýning ársins fyrir síðasta leikár.  Ákveðið hefur verið að sýna örfáar sýningar í haust vegna fjölda fyrirspurna. Verkið kom sem ferskur blær inn í íslensk leikhúslíf  síðast liðinn vetur og er tilraun Mindgroup manna til að skilja samtímann sem þeir um leið taka úr því samhengi sem við höfum sett hann í og birta okkur fáránleikan sem leyndist í samtímanum. Sýningartími verksins var snarpur og því komust færri að en vildu.  En í haust gefst tækifæri til að sjá pólitíst leikhús á Íslandi eins og Þorvaldur Gylfason benti á í grein sinni í Fréttablaðinu nú í júní þá er „Pólitískt leikhús varla til á Íslandi, ekki enn. Nýleg undantekning er sýningin Þú ert hér eftir Mindgroup í Borgarleikhúsinu. Þar var fjallað um hrunið. Eitt fyndnasta og áhrifamesta atriði sýningarinnar var löng og mærðarmikil lofræða manns í blindfullum embættisskrúða um Ísland og Íslendinga, á meðan tveir aðrir hámuðu í sig pylsur hinum megin á sviðinu, ca. þúsund pylsur.”  (Fréttablaðinu 18. Júní 2009).



Þetta vefsvæði byggir á Eplica