Fréttir

Nýir leikarar bætast í hópinn

Hilmir Snær, Jörundur og Rúnar Freyr á föstum samning við Borgarleikhúsið

1.7.2009

Fyrsta verkefni Hilmis Snæ er leikstjórn á nýju verðlaunaverki Tracy Letts, August:Osage County eða Fjölskyldan eins og vinnutitill verksins hljómar á íslensku. Verkið hefur farið sigurför um heiminn og hefur verið nefnt fyrsta klassík 21. aldarinnar. Verkið er fimmfaldur Tony verðlaunahafi ásamt því að hafa hlotið Pulitzer verðlaunin sem leikverk ársins 2008 og Drama Desk verðlaunin sama ár. Verkið hefur verið sýnt óslitið á Broadway frá fumsýningu árið 2007.
Rúnar Freyr byrjar haustið undir leikstjórn Hilmis í Fjölskyldunni, en verkið verður frumsýnt í lok október. Rúnar Freyr hefur áður tekið þátt í uppfærslum í Borgarleikhúsinu, en nú fáum við að njóta hæfileika hans í meira mæli en áður. Fyrsta verk Jörundar verður að leika í Heima er best, nýju írsku verki eftir Enda Walsh sem Jón Páll Eyjólfsson leikstýrir. Verkið fjallar um feðga sem sviðsetja fortíðina til að flýja raunveruleikann. Jörundur hefur ekki áður verið á samningi við leikhús, en er vel þekktur af vinnu sinni í kvikmyndum og sjónvarpi og ber þar hæst sjónvarpsþættirnir Nætur- og Dagvaktin.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica