Fréttir

Faust og Nick Cave í Borgarleikhúsinu um jólin

Borgarleikhúsið í samvinnu við Vesturport setja upp jólasýningu leikhúsins

8.7.2009

Það verður ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kemur að jólasýningu Borgarleikhússins í ár. Leikhúsið hefur fengið til liðs við sig Gísla Örn Garðarsson og félaga hans í Vesturport til að vinna nýja leikgerð sem byggð er á verki Goethe um Faust og leit hans af lífshamingjunni. Með í för verður tónlistarmaðurinn Nick Cave sem semur tónlist við verkið. Vinna við skriftir stendur yfir hjá Vesturport fólk undir stjórn Gísla, en hann mun leikstýra verkinu. Ekki hefur verið ráðið í hlutverk ennþá en vonir standa til að það verði klárað á komandi vikum. Áður hafa Borgarleikhúsið og Vesturport unnið saman að uppsetningum til dæmis af verkinu Kommúnan og Ást og síðast Woyzeck. En sú uppfærsla hefur ferðast til átta landa víðsvegar í heiminum og notið hvarvetna mikillar hylli.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica