Fréttir

Fjölbreytt og skemmtilegt opið hús 29. ágúst

Borgarleikhúsið verður að springa af lífi á árlegu opnu húsi. Brot úr leiksýningum ársins, opnar æfingar, lifandi tónlist, barnaskemmtun, skoðunarferð um leikhúsið að tjaldabaki og auðvitað vöfflubaksturinn sígildi! Og þú ert velkominn.

7.8.2009

  Eins og fram hefur komið verður Opið hús Borgarleikhússins þann 29. ágúst frá kl. 13-17 og hefur dagskráin sjaldan verið glæsilegri. Húsið verður að springa af lífi þar sem leiklist, tónlist og skemmtun sprettur úr hverju horni. Gestum býðst að sjá fjölmörg atriði úr sýningum leikhússins,  gægjast inn á opnar æfingar á leiksýningum sem eru í vinnslu, fara í skoðunarferð um króka og kima leikhússins og skoða leyndardómana að tjaldabaki. Ýmsar þekktar persónur sem börnin þekkja verða á stjái um húsið og lifandi tónlist mun óma í forsalnum.  Kjörið tækifæri gefst til að kynna sér glæsilega dagskrá leikársins sem framundan er.  Síðast en ekki síst verður að sjálfsögðu boðið upp á rjúkandi vöfflur eins og undanfarin ár þar sem leikhússtjórinn, Magnús Geir verður í fararbroddi starfsfólks við vöfflubaksturinn. Það er ljóst að allir eiga að finna nóg við sitt hæfi á Opnu húsi Borgarleikhússins, ungir sem aldnir og allt þar á milli.  

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica