Glæsilegt leikár kynnt 21. ágúst
Fjölbreytt og metnaðarfullt leikár verður kynn þann 21. ágúst. Áskriftarkortin verða áfram með sama sniði og á sama verði: 4 sýningar á aðeins 8.900 kr
Það styttist í að Borgarleikhúsið dragi tjöldin frá og kynni nýtt og spennandi leikár. Það verður gert þann 21.ágúst næst komandi. Leikárið kemur í kjölfar aðsóknarmesta leikárs í sögunni en ríflega 207 þúsund gestir sóttu sýningar Borgarleikhússins á síðasta leikári.
Nýtt leikár, 2009-2010, er fjölbreytt og metnaðarfullt og þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Þar er bæði að finna leiksýningar sem skemmta og gleðja en aðrar sem ögra og spyrja áleitinna spurninga. Stefnan er sú sama og í fyrra, enda virtust leikhúsgestir og gagnrýnendur vera sáttir við þá stefnu sem leikhúsið hafði tekið. Við lofum ykkur einstöku leikári!
Dagskráin verður kynnt með samskonar Borgarleikhúsblaði og gert var í fyrra. Það verður borið út til allra heimili á höfuðborgarsvæðinu en einnig er hægt að óska eftir því við miðasölu leikhússins að fá blaðið sent í pósti.
Í fyrra kynnti Borgarleikhúsið nýja tegund áskriftarkorta og heldur leikhúsið áfram á sömu braut og með sama verð og í fyrra! Með kortunum færð þú öruggt sæti á fjórar sýningar sem þú velur algerlega sjálfur en kortið kostar aðeins kr. 8.900 sem er 40% ódýrara en almennt miðaverð. Einnig voru kynnt ný áskriftarkort fyrir ungt fólk og námsmenn á kr. 4.450. Ungt fólk og námsmenn fá því áskriftarkort á hálfvirði almenns korts. Kortin virka eins, fjórar sýningar að eigin vali bara helmingi ódýrari.
