Fréttir

Glæsilegt leikár kynnt í dag 

Hárbeitt, fjölbreytt og skemmtilegt verkefnaval framundan í vetur

20.8.2009

 

Nýtt og spennandi leikár var kynnt starfsfólki Borgarleikhúsins í dag. Mikil eftirvænting ríkti og leyndi ánægjan sér ekki þegar tjöldin voru dregin frá og leikárið kynnt. Nýliðið leikár var það aðsóknarmesta í sögu Borgarleikhússins og því mikilvægt að þakka gestum okkar fyrir komuna í Borgarleikhúsið og bjóða upp á eins öflugt, ef ekki öflugra leikári í ár. Og því er hvergi slakað á kröfunum milli leikára.  

Komandi leikár ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi því hláturtaugar verða kitlaðar, bestu vinkonur allra barna flytja inn í Borgarleikhúsið, ný leikgerð um Faust verður frumsýnd um jólin og við bjóðum til söng- og leikveislu þegar Gauragangur, Ólafs Hauks Símonarsonar verður settur á svið eftir langa bið.

Verkefnaval komandi leikárs einkennist af nýjum leikverkum, krafti, fjölbreytni, spennu og mikilli skemmtun í bland við íslenska gæða leikhús. 

Á stóra sviðinu byrjum við haustið á Söngvaseið þar sem leikhúsgestir voru langt í frá búnir að sjá nóg í vor en síðan tekur við nýtt leikrit eftir bandaríska leikskáldið Tracy Letts, Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu.  Litla sviðið verður hálfgert trúðasvið í ár. Þar verður sett á svið stórskemmtileg trúðasýning fyrir alla fjölskylduna þar sem vatn verður skoðaða í öllum sínum ótrúlegu birtingarmyndum.  Og nýtt verk byggt á jólaguðspjallinu, Jesús litli, verður frumsýnt í nóvember en þar verða trúðarnir Barbara og Úlfar í forsvari. Nýja sviðið verður áfram vettvangur ögrandi verkefna, Heima er best verk eftir Enda Walsh verður frumsýnt í lok september og síðan tekur við nýtt íslensk verk eftir ungt leikskál, Heiðar Sumarliðason Rautt brennur fyrir.

Þetta er annað leikár Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra og hefur hann sýnt að hann er réttur maður á réttum stað. Hvert metið á fætur öðru var slegið í Borgarleikhúsinu bæði í aðsókn og sýningarfjölda. Kraftur og jákvæðni einkenna allt starf leikhússin og hefur Magnúsi tekist að laða til sín marga af bestu listamönnun þjóðarinnar.

Ný áskriftarkort voru kynnt á síðasta leikári og var þeim gríðarlega vel tekið og ellefufaldaðist sala á áskriftarkortum milli ára. Áskriftarkortin halda áfram með óbreyttu sniði og óbreyttu verði milli ára og geta námsmenn og fólk yngra en 25 ára tryggt sér áskriftarkort á hálfvirði, 4.450 kr fjórar sýningar að eigin vali.

Nú skella sér allir á áskriftarkort - og eiga heillandi leikhúskvöld framundna í vetur. 

Kynningarrit leikárið 2009-2010   



Þetta vefsvæði byggir á Eplica