Fréttir

Grettistak í leikhúsinu

24.8.2009

  

Leiðari Morgunblaðsins, föstudaginn 21. ágúst 2009:

Grettistak í leikhúsinu

Lyft hefur verið grettistaki í Borgarleikhúsinu undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra.

Ekki aðeins vegna þess að sett var aðsóknarmet síðasta leikár, þar sem 207.576 gestir lögðu leið sína í leikhúsið. Aldrei hafa fleiri lagt leið sína í íslenskt leikhús og munar þar miklu um að sýningarnar skírskota til fólks á öllum aldri, ekki síst ungs fólks.

Ekki aðeins vegna þess að sýningarnar áttu það sammerkt að höfða til almennings og fá lofsamleg viðbrögð gagnrýnenda – metnaðurinn vék ekki þó að leiklistin færðist nær almenningi.

Ekki aðeins vegna þess að leikhússtjórinn hefur augljóslega skilning á því að til þess að skapa góða sýningu eru allir jafnmikilvægir innan leikhússins – samtakamátturinn dregur fram töfra leikhússins.

Það sem er ekki síst markvert við þann árangur sem náðst hefur í Borgarleikhúsinu er að fjárhagsáætlanir stóðust og leikhúsið skilaði afgangi, þrátt fyrir óvæntan niðurskurð á framlögum Reykjavíkurborgar um 50 milljónir á miðju leikári. Slíkur rekstrarárangur er alltof fátíður í rekstri opinberra stofnana, sem sumar hverjar eru gjarnar á að fara fram úr fjárlögum, nokkuð sem stjórnvöld verða að koma böndum á til að árangur náist í ríkisfjármálum.

Í stað þess að hengja haus eða bregðast ókvæða við beiðni borgaryfirvalda um niðurskurð, þá sýndi Magnús Geir ákvörðuninni skilning á krepputímum og stólaði á baráttuþrek starfsmanna leikhússins – sem brugðust ekki þegar á reyndi.

Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að auðvitað væri áfall fyrir leikhús að taka á sig slíka skerðingu. „Hins vegar lítum við svo á, að á þessum erfiðu tímum, þegar allir eru að taka á sig skelli – sjúkrahús, menntastofnanir og fleiri, þá getum við ekki skorast undan.“

Magnús Geir hefur áður sýnt hvers hann er megnugur, þegar hann sneri við rekstri Leikfélags Akureyrar og lyfti aðsókn nær því sem tíðkast hjá stærri leikhúsum sunnan heiða.

Í þeim niðurskurði sem framundan er verða viðbrögð leikhússtjórans og starfsfólks Borgarleikhússins vonandi öðrum hvatning og fyrirmynd að því hvernig hægt er að ná árangri, og það framúrskarandi árangri, með naumara veganesti en áður.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica