Áskriftarkortin vinsæl
Mikil ánægja með nýtt leikár og áskriftarkortin rjúka út
Áskriftarkortasalan fer vel af stað og mikil eftirvænting hjá leikhúsgestum að hefja leikárið. Það styttist í fyrstu frumsýningar vetarins og margir farið strax af stað til að tryggja sér sínar sýningar fyrir veturinn. Ánægjulegar heimsóknir í miðasölu og skemmtileg símtöl gefa okkur byr undir báða vængi fyrir leikárið og segja okkur að valið sé spennandi og rétt samsett. Það finna allir eitthvað við sitt hæfi og sumir þurfa jafnvel tvö kort til að tryggja að þeir missi örugglega ekki af sínum sýningum. Það er útlit fyrir að ungt fólk ætli að vera duglegt að fara í leikhús í vetur og ánægulegt að sjá stóra vinahópa heimsækja miðasöluna og velja saman sýningar fyrir veturinn.
