Fréttir
Borgarleikh s_Staff_l til

Opið hús á laugardag

26.8.2009

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum klukkan 13 laugardaginn 29. ágúst eins og venja er síðustu helgina í ágúst og bíður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Opið hús í Borgarleikhúsinu er orðinn fastur liður í menningarlífi Reykjavíkur. Það verður líf á öllum sviðum og gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Magnús Geir, mun reiða fram af myndarskap ásamt öðru starfsfólki. Leikarar, leikstjórar og tæknifólk verða við störf á öllum sviðum hússins; ýmist við æfingar eða sýningar eða til þess að svara spurningum sem brenna á forvitnum leikhúsgestum. Nýtt leikár Borgarleikhússins fer mjög vel af stað og útlit fyrir að það gefi síðasta ári ekkert eftir. Kortasalan rauk af stað og er þegar orðin jafnmikil og á sama tíma í fyrra.

Opið hús er orðinn fastur liður í menningarlífi Reykvíkinga síðustu helgina í ágúst. Siðurinn hófst þegar Leikfélag Reykjavíkur flutti í Borgarleikhúsið fyrir 20 árum síðan og hefur verið haldið í heiðri nær óslitið síðan. Borgarbúar kunna að meta daginn og flykkjast í leikhúsið til að kynna sér verkefni vetrarins. Aðsókn að opnu húsi hefur alltaf verið góð en þó aldrei meiri en fyrir ári þegar gestir voru yfir 7000 talsins.


Allir velkomnir á opið hús í Borgarleikhúsinu, laugardaginn 29. ágúst á milli kl. 13 og 16. – Og að sjálfsögðu er ókeypis aðgangur.


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica