Fréttir

Opið hús í dag milli kl. 13 -16

Við tökum vel á móti ykkur

29.8.2009

 

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum klukkan 13 í dag eins og venja er síðustu helgina í ágúst. Við bjóðum í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Opið hús í Borgarleikhúsinu er orðinn fastur liður í menningarlífi Reykjavíkur.
Það verður líf á öllum sviðum og gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum.

Leikarar, leikstjórar og tæknifólk  verða við störf á öllum sviðum hússins; ýmist við æfingar eða sýningar eða til þess að svara spurningum sem brenna á forvitnum leikhúsgestum.

Það mun engum leiðast á opnu húsi Borgarleikhússins meðal þess sem í boði verður er:

Brot úr Söngvaseið, söngleiknum ástsæla, verður flutt á Stóra sviðinu frá kl. 13

Flutt verður brot úr Harry og Heimi sem frumsýnt verður í september

Skoppa og Skrítla munu flytja inn í Borgarleikhúsið upp úr kl. 14.00 með mikilli athöfn og þurfa hjálp barnanna við flutningana. Í kjölfarið munu þær síðan skemmta í forsal enda bestu vinkonur allra barna.

Leikhússtjórinn, Magnús Geir ásamt öðru starfsfólki, mun bjóða upp á ilmandi nýbakaðar vöfflur og kaffi.

Skoðunarferðir verða reglulega yfir daginn og verður fólk leitt um króka og kima þessa stærsta leikhúss landsins. Þar verður baksvið skoðað, búningageymslur, æfingasalir, förðunardeild, smíðaverkstæði og margt fleira. Hvernig snýst sviðið og hvað gerist undir sviðinu, eða í herbergi leikaranna baksviðs?

KK stígur á svið í forsalnum en hann semur og flytur tónlistina í Fjölskyldunni sem frumsýnt verður í október

Opin æfing á Heima er best á Nýja sviðinu

Hilmir Snær ásamt leikhópi sínum tekur á móti gestum á opna æfingu á Fjölskyldunni á æfingasal

Trúðarnir, Barbara og Úlfar skemmta og flytja brot úr Dauðasyndunum

Íslenski dansflokkurinn sýnir brot úr verkum sínum á Stóra sviði og í forsal

Flutt verður tónlist úr Gauragangi í forsal.

Söngvaseiðsís, blöðrur

Teiknisamkeppni. Verðlaun: ferð fyrir fjölskylduna á Söngvaseið eða Skoppu og Skrítlu

Brot úr hinni hárbeittu sýningu Þú ert hér

Happadrætti,  á klukkutíma fresti. Verðlaun: Gjafakort fyrir tvo

Sönglist og Borgarbörn flytja tónlistaratriði á Litla sviði

Trúðarnir í Bláa Gullinu taka fagnandi á móti gestum

Í forsal leikhússins mun hljómsveitin Geirfuglarnir leika ásamt fjölda leikara hússins auk þess má búast við óvæntum uppákomum  því leikhúsið getur sprottið fram alls staðar!

Nýtt leikár Borgarleikhússins fer mjög vel af stað og útlit fyrir að það gefi síðasta ári ekkert eftir. Kortasalan rauk af stað og er þegar orðin jafnmikil og á sama tíma í fyrra.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica