Fréttir

Frábærar viðtökur við opnu húsi

Það var líf og fjör á opnu húsi í gær og mikið um að vera

30.8.2009

opid_hus_20090809

 

Það var mikið líf og fjör í Borgarleikhúsinu á opnu húsi í gær þegar ríflega 9.000 manns komu og heimsóttu okkur og gæddu sér á ilmandi leikhúsvöfflum ásamt því að skemmta sér með starfsfólki hússins í skoðunarferðum að tjaldabaki. Inn í Stóra sal voru leikarar í Söngvaseið og dansarar Íslenska dansflokksins að sýna frá sínum sýningum. Börn skemmtu sér við að hanna sitt eigið ljósa"show" á svölum í forsalnum sem þau síðan hljóðskreyttu og Skoppa og Skrítla heilluðu smáa og stóra þegar þær mættu með búslóðina í Borgarleikhúsið.

Það verður dregið í teiknisamkeppni í næstu viku og birtum við nöfn vinningashafa hér á fréttasíðunni og eins koma myndir frá búningamátun hingað inn á fréttasíðuna - svo fylgist vel með á næstu dögum.

Við þökkum öllum sem komu fyrir innlitið og vonumst til að hitta ykkur oft í vetur í Borgarleikhúsinu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica