Beint í leiðarkerfi vefsins.
Einn ástsælasti lagahöfundur landsins síðustu fjóra áratugi stígur á svið Borgarleikhússins ásamt úrsvalshljómsveit og flytur öll sín þekktustu lög 2. október næst komandi.
Lesa meiraNú er hægt að kynna sér á vefnum dagskrá leikhúsferðar Borgarleikhússins og Express ferða til Berlínar í nóvember.
Lesa meiraAftur alger sprenging í sölu áskriftarkorta og hefur Borgarleikhúsið slegið eigið met.
Lesa meiraHarrý og Heimir – með öðrum morðum var frumsýnt í gærkvöldi. Áhorfendur grétu af hlátri á frumsýningu eins og forsýningunum þar á undan. Fyrsta gagnrýnin sem birtist fer afar lofsamlegum orðum um sýninguna og leikarana.
Lesa meiraÍ gær undirrituðu Guðmundur Örn Gunnarsson forstjóri VÍS og Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhússins samstarfssamning. Samningurinn er undirritaður í kjölfar farsæls samstarfs fyrirtækjanna undanfarin ár og er slík samvinna gríðarlega mikilvæg fyrir Borgarleikhúsið. VÍS verður auk þess aðalstuðningsaðili jólaleikrits Borgarleikhússins Faust sem sett er upp í samvinnu við Vesturport. Þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa fyrirtækin í landinu staðið þétt við bakið á Borgarleikhúsinu og nú í haust hafa nokkur fyrirtæki komið inn í starfið í Borgarleikhúsinu af miklum krafti.
Fyrsta frumsýning leikársins er framundan og það eru stórleikararnir Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason sem ríða á vaðið með leikrit sitt Harry og Heimi – með öðrum morðum. Greinilegt er að þeir bíða spenntir eftir verkinu því þegar er uppselt á 20 fyrstu sýningar verksins.
Lesa meiraMyndasafn frá Opnu húsi hefur verð sett upp á vefnum okkar undir önnur starfsemi og má þar finna myndir af krökkunum sem mátuðu hárkollur, hatta og búninga hjá stelpunum í búningadeildinni og leikgervunum.
Lesa meira